Þakka góðar kveðjur,
Nú styttist í að alvara lífsins taki við.
Krakkarnir byrja í skólanum á miðvikudaginn og mamma fer heim á fimmtudaginn, hennar verður sárt saknað, þó auðvitað sé skrýtið að búa allt í einu með mömmu sinni aftur þá er það búið að vera alveg yndislegt, svo maður tali ekki um léttinn við að deila aftur ábyrgð á heimilishaldi. Ekki að ég sé búin að vera að þræla henni út, sama hverju hún mun halda fram þegar hún kemur heim til Íslands.
Þar sem að Óðinn byrjar í fyrsta bekk hér þá verður skóladagurinn hjá honum ekki komin í eðlilegt horf fyrr en 12. sept. Þessa vikuna mun hann bara mæta milli 11 og 12, þ.e. miðv.dag, fimmtud. og föstudag. Næstu þrjár vikur þar á eftir mætir hann eingöngu frá 9-12 og svo 12. sept byrjar hann að mæta frá 9-3. Svo er spurning hvernig stundataflan mín verður hvort ég þurfi að koma honum í after-school-club eða hvað. Unnur byrjar að okkur skilst alveg á fullu strax á miðvikudaginn því krakkarnir hér fengu víst 3 daga prufukeyrslu í vor. Ætla samt að hringja í skólann hennar á morgun og forvitnast um það. Vera vel undirbúnar.
Óðinn hefur verið hérna úti í bakgarði þrjú síðustu kvöld að leika við einhverjar stelpur sem tóku að sér að kenna honum ensku, þeim finnst hann að sjálfsögðu algert krútt. Unnur kíkti út í kvöld líka og hitti stelpur á sínum aldri. Henni þótti þær víst heldur barnalegar. Vildi ekki trúa því að ein þeirra væri ári eldri en hún sem ég held að hún sé alveg örugglega :)
Ég fer svo til læknis á morgun. Ég semsagt þurfti að sjálfsögðu að skrá okkur hjá GP hérna í borg og var svo heppin að fá lækni í næstu götu. Þetta fer nú að verða spaugilegt hvað allt er í stuttri fjarlægð frá okkur. En semsagt ég þarf að fara í "check-up" og skila þvagprufu og allt til þess að fá skráningu :)
Ég á líka ennþá eftir að klára af bankann. Hef bara ekki komið mér til þess að skila inn umsókninni, enda ekki verið nein pressa. Debet- og kreditkortin mín virka ágætlega í útlandinu. En ætli það borgi sig ekki fyrir mig að drífa í þessu því ég er örugglega að borga slatta fyrir úttektirnar.
Jæja. Nú er mál að ljúki frásögn dagsins í dag.
Því er við að bæta að lokum að veðrið er búið að leika við okkur og var alger molla í kvöld.

