Helgi
Veðrið er yndislegt, himininn heiðskír og borgin bíður eftir okkur.
Á föstudögum eru krakkarnir bara í skólanum til hádegis svo við röltum okkur um miðjan dag niður á Lothian Road og skelltum okkur í bíó klukkan 15.30. Krökkunum þótti kvikmyndahúsið (Odeon) ótrúlega fínt og við keyptum popp í "baðkari" og horfðum á Charlie and the Chocolate Factory. Þrælfín skemmtun. Ég var búin að gleyma alltof miklu af sögunni. Ég man að Sjónvarpið sýndi teiknimyndaseríu um Kalla og súkkulaðiverksmiðjuna sumarið 1985 og voru Úmpalúmparnir uppáhaldið mitt. Ég fór á Vopnafjörð þetta sumar og það voru strákar þaðan sem tóku þátt í hljómsveitakeppni í Atlavík undir nafninu Grandmaster gámur and the úmpalúmpas :)
Eftir myndina fórum við á Pizza Hut og röltum svo heim aftur og lentum í hellirigningu - svona ekta hitabeltisskúr :)
Enda var mjög hlýtt og gott veður í gær. Það er búið að vera alveg frábært veður flesta daga þó hefur rignt reglulega
- allavega á morgnana eða á kvöldin. Sá einhversstaðar að það rigni 312 daga á ári. Get vel trúað því.
Óðinn er mjög ánægður í skólanum. Hlakkaði mikið til að mæta í gær og er komin í skólabúning/fatnað og allt. Það var honum mjög mikilvægt. Svo verður þetta enn betra þegar hann fer að vera einhvern tíma, einn klukkutími á dag var ekki mjög mikið. Unnur er komin með einhverjar stelpur sem hún er farin að spjalla við svo ég á von á að þau verði komin í góð mál eftir tvær-þrjár vikur.
Sæl að sinni.

