› Blogs › khh's blog ›
Closer
Ef þið eruð ekki búin að sjá þessa mynd þá er hún algert "must see". Nemendum mínum til mikillar ánægju þá er ég heima við í dag að reyna að ná úr mér þessari pest og nota tækifærið við að horfa á efni sem safnast hefur upp. Mér hefur alltaf þótt mikið varið í Clive Owen en hér sannar hann að hann er magnaður og margslunginn leikari sem á öll sín verðlaun svo sannarlega skilin.
Ég man bara ekki hvenær ég var síðast svona agndofa yfir mynd... en eitt er víst að hún er svona fullorðins. Aðrir leikarar í myndinni eru Julia Roberts, Jude Law og Natalie Portman. Þau skila öll sínu mjög vel.

