Thank God It's Friday :)
Jæja, fyrsta heila skólavikan hjá krökkunum bráðum að baki, þau eru alltaf búin klukkan tólf á föstudögum. Það hafa verið blendnar tilfinningar seinni part vikunnar. Unnur er með svolitla heimþrá en vonandi jafnar það sig aftur. Við höfum það náttúrulega alveg ótrúlega gott hérna og hún og Óðinn eru núna komin saman í herbergi og það er ferlega huggulegt hjá þeim. Ég er semsagt komin í "prinsessu"- herbergið og það fer ægilega vel um mig þar. Við erum búin að kynnast íslensku fólki sem býr hérna í næstu götu. Ég var örugglega búin að nefna það að það væri íslensk stelpa í skólanum hans Óðins sem við vorum ekki búin að kynnast og svo fréttum við að það væri íslenskur strákur í skólanum hennar Unnar. Þau eru semsagt systkini. Hann er 14 ára og hún er 6 ára eins og Óðinn. Hún var nefnilega flutt niður í bekkinn hans Óðins í fyrradag. Hún hafði verið sett með jafnöldrum sínum í bekk, eða í Primary 2, en þar sem þau byrja í skóla 5 ára hér þá var hún eftir á. Kann hvorki að lesa né skrifa eins og Óðinn svo þau eru komin saman í bekk. Alveg frábært. Krakkarnir finna svo mikið öryggi í því að hafa Íslendinga nálægt. Mér leiðist nú pínu þessa dagana en aðallega vegna þess að ég er eiginlega búin að vera hundveik og hef ekki haft mikla orku í að gera nokkuð. Það fer nú vonandi að lagast aftur og þá get ég nýtt þessar tvær vikur sem ég á eftir í fríi áður en skólinn byrjar til þess að undirbúa mig betur.
Krakkarnir fara heim 13. október og koma ekki aftur fyrr en 25.okt, Edda Lára kíkir til mín 13. til 16. okt en síðan er laust herbergi ef einhver hefur áhuga á að kíkja í heimsókn :) Ekki mjög hentugur tími svo sem.
Sæl að sinni.

