Patrick Dempsey

...og Gray's Anatomy. Fyrsta sería var sýnd í Ameríku í fyrra. Ég er að byrja að fylgjast með henni núna í kvöld á LIVINGtv - líst vel á. Dempsey er ansk... heitur í þessum þætti. Í öðrum fréttum er að ég er loksins að losna við kvefið og fer núna að hafa orku/heilsu til að gera eitthvað. Ég reyndar hjálpaði nágrönnunum að tengjast netinu, strax komin í það hlutverk - Kolbrún tengjari :) hef hrikalega gaman af því finna út úr svona hlutum. Enda hlakka ég ægilega til þess að byrja í skólanum.

Man ekki hvort ég var búin að hrósa því að hér hinum megin við götuna (á sama stað og skólar krakkanna eru) eru endurvinnslugámar fyrir allt mögulegt. Svo að Sorpuhliðin minni verður viðhaldið. Er náttúrulega ekki í eðli mínu að henda dósum, plasti og pappír :) það er meira að segja gámur fyrir föt/skó.

Share this