enn um veðrið...og mýs

algert molluveður úti, held að það sé um 90% raki. Á örugglega eftir að rigna hressilega í kvöld.

Mér var boðið í kaffi með nágrannakonum mínum í morgun, það var mjög gaman. Þær voru mjög skemmtilegar og almennilegar. Allar með börn á aldur við mín. Mér skildist á Catrionu (hún ber það fram eins og Katrina) að ég verði framvegis velkomin í þetta gill hjá þeim. Mjög sátt við það. Verst að ein þeirra sem býr hérna neðar í götunni er að kljást við mýs núna. Ekki mjög spennandi að heyra það. Nú verð ég ennþá meira nojuð. Ég er bara á fullu í forvörnum. Reyna að troða stálull í öll göt, passa að skilja aldrei eftir mat neinsstaðar. Er reyndar með ávaxtaskál á borðinu ennþá og ætla að þrjóskast við með það þar til ég sé í alvörunni mús. Mér finnst þetta svoooo óþægileg tilhugsun. Ekki að ég sé hrædd við mýs en mig langar einhvernvegin ekki að hafa þær skokkandi hér um og yfir okkur á næturna kannski og svona. Jökk :) Æ vonum það besta bara.

Góður dagur að öllu músatali undanskildu. Við Óðinn röltum við hjá Little Foxes sem er svona after-school-club, honum leist rosalega vel á og varð svekktur að mega ekki verða strax eftir. Hann fær að byrja í næstu viku vonandi. Geri ráð fyrir að leyfa honum að vera tvisvar í viku. Ég er búin að fá stundatöflu og verð í skólanum seinnipartinn á miðvikudögum og fimmtudögum svo að ég læt hann vera þá daga frá 3-6. En þar til hann byrjar fullan dag í skólanum ætla ég að nýta það að Litte Foxes bjóða upp á Midday gæslu milli 12-3. Þá er hann sóttur í skólann og allt. Þetta kostar auvitað heilan helling, en fyrir 2x á viku í 4 vikur kostar þetta 68 pund (8,50 á dag)reyndar með snarli inniföldu. Er í lagi meðan ég þarf ekki að borga alla daga.

Share this