Sein til enn og aftur
Submitted by khh on 2 September, 2005 - 10:14
...ég hef verið afskaplega sein til að upplifa ýmsar perlur í kvikmyndaheiminum en ég er glöð að hafa átt þessa inni. Ég semsagt var að enda við að horfa á Eternal Sunshine of the Spotless Mind og það er langt síðan ég hef verið svona ofboðslega heilluð - meira að segja Closer hafði ekki þessi áhrif á mig. Ég hef reyndar verið hrifin af öllum myndum Charlie Kaufman, ekki að þær séu margar og á reyndar eftir að sjá Human Nature. En þessi er þeirra allra best finnst mér. Hún er svo innileg og sönn, tilfinningalega séð. Þannig að ef þið eruð ekki búin að sjá hana - þá eigið þið gott inni.

