Dúfur í Vancouver 2003

Dúfur í Vancouver 2003

Ótrúlega smart dúfur fyrir utan hótelgluggann okkar í Vancouver í febrúar 2003

Gleðileg jól / Merry Christmas

Gleðileg jól / Merry Christmas

-/-

Sumar á aðventu

Sumar á aðventu

Væri ekki geggjað ef það væri alveg að koma sumar :O)

Miðjan

Skráði mig sem penna á Miðjunni og sendi inn smá pistil svona til að byrja einhvernveginn strax. Krimmar og annað fólk.

Falling

Falling

Það er svo ótrúlega skemmtilegt hvað maður getur verið seinheppin suma daga. Í gærmorgun tókst mér að fljúga á hausinn á leiðinni út úr húsi og það þrátt fyrir að hiti sé í tröppum og stétt (hafði myndast klaki á blábrúninni á tröppunum). En hörkukvendið sem ég er hristi nístandi sársauka í báðum sköflungum af mér og dreif mig upp á spítala þar sem ég átti að mæta í blóðprufu.

Ég settist kotroskin í sætið hjá hjúkrunarfræðinginum sem reddaði mér plástri á blæðandi sárið á hægri sköflungi. Svo byrjaði hún að draga úr mér blóð (vil taka það fram að ég fer reglulega í blóðprufu og er því vön) og þegar hún var rétt byrjuð þá varð mér ægilega ómótt og áður en ég vissi af var liðið yfir mig. Ég síðan ranka við mér einhverju seinna alveg út úr heiminum og mundi ekkert hvar ég var, dauðbrá við að sjá spítalaklæddar konur stumra yfir mér og ég hélt augnablik að ég hefði lent í slysi :0)

Úff hvað þetta var óþægileg tilfinning. Held það hafi síðast liðið yfir mig í smíðatíma hjá Tóta heitnum smíðakennara þegar hann var að reyna að kreista flís úr þumalputtanum á mér (ég var held ég 10 ára). Eða hvort það var í 11 ára afmælinu hennar Bryndísar fyrir réttum 25 árum síðan þegar ég datt og handleggsbrotnaði á báðum og leið útaf af sársauka.

*ath. myndin er ekki af hinu eiginlega atviki heldur fengin að láni HÉR.

áfengisneysla unglínga í framhaldsskólum

Nýlega birtust fréttir af rannsókn sem gerð var á áfengisneyslu unglínga og kom þar í ljós ef ég man rétt að áfengisneyslan eykst um 140% milli 10. bekkjar og 1. árs í framhaldsskóla. Vegna þessara niðurstaðna var rætt að banna þyrfti partý fyrir framhaldsskólaböllin, eins og það sé virkilega mögulegt!

Má ég leggja fram þá tillögu frekar að framhaldskólar sjái til þess að böllin séu haldin á skikkanlegum tímum. Mér þykir alger óþarfi að láta böllin ekki hefjast fyrr en kl. 22 eins og venjan er í dag þeim lýkur þá ekki fyrr en kl. 1 eftir miðnætti nú eða kl. 2 eins og Eplaball Kvennó um daginn. Þessi böll eru ávallt haldin á virkum dögum og mæting í skóla daginn eftir. Væri ekki heilbrigðara að láta böllin hefjast fyrr og láta þeim ljúka fyrir miðnætti.

Þetta virðst ekki vandamál í nágrannalöndum okkar en við erum auðvitað alveg sérstök í því að þurfa að fara seint að djamma og djamma fram á morgun.

New view

New view

Sunset at 3.39pm

Sunset at 3.39pm



Took this through the curtain. Thought it made an interesting pic.
Taken on my new mobile :)

Menningarnótt 2004

Menningarnótt 2004


Kolla samstarfsfélagi minn fann þessa mynd þegar hún var að fara í gegnum Menningarnæturmyndir, þessi er semsagt síðan 2004.

Syndicate content