IPMA (International Project Management Association), hið alþjóðlega verkefnastjórnunarfélag, heldur reglulega framhaldsnámskeið fyrir verkefnastjóra þar sem þeim gefst tækifæri á að auka við þekkingu sína á ýmsum sviðum. Þetta árið eru þessi framhaldsnámskeið haldin tvisvar. Hið fyrra fór fram nú á dögunum í Hillerød, Danmörku nánar tiltekið 10.-12. Mars 2011 og hið seinna fer fram í Mílanó, Ítalíu dagana 7.-9. nóvember. Félagar í verkefnastjórnunarfélagi Íslands eiga rétt á að sækja þessi námskeið. IPMA framhaldsnámskeiðin eru ætluð til þess að útvíkka verkefna og verkstofna stjórnunar hæfileika, hvort sem ætlunin er að auka reynsluna eða bæta hæfni við notkun aðferða eða framkomu. Þeir eru mjög viðeigandi fyrir reynda verkefnisstjóra, verkstofnastjóra, verkefna ráðgjafa og þá sem þjálfa verkefnisstjóra. Eins er mælt með þeim fyrir þá sem ætla að taka B og A vottun.
Ég sótti námskeið í „Coaching and falicitating as a lever for efficiency in projects“ en þar var farið ítarlega í þjálfun einstaklinga og þess að nota þjálfun sem vogarafl við að greiða fyrir skilvirkni í verkefnum. Allt í allt voru sex námskeið í boði og heildarfjöldi þátttakanda var um 70 manns með leiðbeinendum. Á mínu námskeiði voru 10 verkefnastjórar, þrír karlmenn og sjö konur auk Merle Runge leiðbeinanda. Merle var frábær og henni tókst að hrista hópinn saman á mjög skömmum tíma og mikil samkennd náðist strax í hópnum. Námskeiðið hófst formlega kl. 9 á fimmtudagsmorgni, kvöldið áður var smá hittingur fyrir þá sem voru mættir á svæðið, með kynningu fyrir allan hópinn þar sem Morten Fangel sá um að kynna hópinn og leiðbeinendur. Dagskráin var þétt og lauk dagskrá míns hóps ekki fyrr en um 18.30 um kvöldið en sumir hópar voru að til 20.00 en þá hófst sameiginlegur kvöldverður. Það kvöld var skemmtiatriði sem allir eða velflestir tóku þátt í og hristi það hópinn enn betur saman.
Dagur tvö á námskeiðinu hófst svo snemma eða kl. 8.30 og Merle hin frábæra vakti okkur með hressandi æfingu. Æfingar dagsins snérust um að leiða hóp í verkefnavinnu og var tilgangurinn að þjálfa okkur í að stýra fundum og vinnustofum í verkefnum. Við gátum nýtt vel það sem við höfðum lært daginn áður í að vinna með aðeins einni manneskju í að finna lausn, um mikilvægi þess að beita virkri hlustun, spyrja opinna spurninga, og hjálpa þeim að svara eigin pælingum og vandamálum. Nauðsynlegt er að leggja af stað með markmið í huga og ekki æða áfram stefnulaust. Stýring (facilitating) funda og vinnustofa krefst skipulagningar og áætlunar og við fórum yfir þá þætti sem mikilvægt er að hafa í huga í slíkum aðstæðum. Hvenær verkefnisstjóri getur sinnt hlutverki „facilators“ og hvenær best er að fá annan eða alveg utanaðkomandi til þess að sinna því hlutverki. Farið var yfir hópamyndun og módel Tuckmans notað sem fyrirmynd svo og hvers verkefnisstjóri þarf að gæta að til þess að greiða fyrir hópamynduninni. Það var mjög gott að vinna með ólíkum verkefnisstjórum og fá að reyna aðferðirnar jafnóðum með raunhæfum verkefnum. Við vorum hvött til að gera mistök því af þeim lærum við best. Merle stýrði okkur mjög vel og beitti aðferðunum sem hún var að kenna okkur markvisst og eftir því sem leið á vorum við í hópnum farin að greina hvort hún vildi halda umræðunni áfram eða loka henni eftir því hvers kyns spurningum hún spurði. Því um leið og hún fór að nota lokaðar spurningar þá þýddi það að við þyrftum að halda áfram. Deginum lauk með því að einn hópur fékk tíma til að stýra hinum í vinnustofu og var okkur úthlutað hlutverkum hverju og einu. Mjög skemmtilegt. Að þessu sinni vorum við að til að verða 19.30 um kvöldið svo það rétt gafst tími til að hoppa í sturtu og fara í sparifötin áður en kvöldverður hófst. Það var örlítið lélegri mæting þetta kvöldið þar sem fólk var vel þreytt eftir stífa dagskrá síðustu tveggja daga og enn einn dagur eftir sem hefjast átti snemma. Það stoppaði ekki mig og mína Danfoss gaura í að spila pool og þythokkí fram yfir miðnætti. Laugardagurinn hófst snemma. Við þurftum að klára að skrá okkur út af hótelinu fyrir byrjun námskeiðsins í viðbót við að borða morgunverð og námskeiðið hófst hálfníu. Þennan dag hófum við með því að heimsækja eitt annað námskeið sem okkur leist vel á og ég leit inn í „Leading Projects from a Distance“. Þar sem fjallað er um hindranir og möguleika þess að vinna í fjarteymum. Þrátt fyrir mína menntun og reynslu af fjarnámi og kennslu þá myndi ég gjarna vilja sitja þetta námskeið því það er alltaf eitthvað sem hægt er að bæta við sig. Námskeiðið var haldið í Pharmakon hótelinu sem er ráðstefnuhótel. Aðstaðan þar er hreint út sagt frábær en ekki er hægt að segja að hún sé endilega ódýr. Nóttin þar kostar 130 evrur um það bil og innifalinn er morgunverður sem var verulega vandaður. Allt brauð er bakað á staðnum, mjólkin, smjörið og eggin lífræn í það minnsta. Klassískur morgunverður beikon, pylsur, egg bæði linsoðin og hrærð, brauð, álegg, safar og kaffi og te. Þá var allur matur sem var innifalinn í námskeiðinu hinn vandaðasti og allir drykkir auk millibita voru innifaldir. Hótelið bauð upp á aðstöðu til líkamsræktar, hægt var að fá lánuð hjól og í kjallaranum var aðstaða til að spila pool, þythokkí, wii tölva og sjónvarp. Allt í allt var þessi upplifun mjög góð og ég myndi gjarna vilja fara aftur.
Þessi grein var skrifuð fyrir MPM-blaðið en varð að víkja fyrir öðru efni.