English

Here I blog in English

Summer

 Summer is amazing, we are having the most fantastic weather here in Iceland and sure feels good to be on holiday right now. My tiny little balcony suits me just fine enough room for my drink and book plus it faces south so get sun during the whole day. 

I noticed that I posted something on the 15th of June and the 15th of May so even tho today is the 16th of July I decided it was time for a post. 

Second half of the year has started and soon Christmas will be upon us ;)

How time flies. Looking forward to the future but enjoying the present immensely.

xoxo

on a hike

 

Burns Supper

Laugardaginn 29. janúar 2011 mun Edinborgarfélagið í 34. sinn standa fyrir Burns Supper.

Samkoman fer fram í Veislusalnum, Skógarhlíð 20, Reykjavík  og hefst kl. 19.00 og lýkur kl. 01.00.

Veislustjóri

Gísli Marteinn Baldursson

Haggisinn ávarpaður

Haggisinn verður ávarpaður með hefðbundnum hætti af David Jarron.

Að venju verður í boði haggis frá McSween of Edinburgh 

Ræðumaður

Súsanna Svavarsdóttir

Haggis, Neeps & Tatties og smá viský lögg

Happdrætti

Uppboð á Haggis 

Dans og lifandi tónlist

Þeir sem dvalið hafa um lengri eða skemmri tíma í Skotlandi ásamt öllum þeim sem áhuga hafa á skosk-íslenskum menningarsamskiptum eru boðnir velkomnir til að hittast og rifja upp gömul kynni. 

Bretar búsettir á Íslandi í lengri eða skemmri tíma eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Aðgangseyrir kr. 4.900

[Fordrykkur, matur, kaffi og sætindi innifalið, áfengir og óáfengir drykkir seldir á staðnum.]

[Hægt að greiða aðgangseyri með greiðslukortum]

Gott væri ef þú létir vita um þátttöku og fjölda gesta tímanlega.

Það er hægt með eftirfarandi hætti:

Á netfang: edinborgarfelagid@kolbrun.is og í síma 821-9984 

Á síðu Edinborgarfélagsins á Facebook—finnst ef slegið er inn Edinborgarfélagið.

Stjórnin:

Margrét Sæmundsdóttir 

Kolbrún Hlín Hlöðversdóttir

Guðbjörg S. Bergsdóttir

Sigurður Arnljótsson

Stefán Pálsson

Reykjavíkurmaraþonið / Reykjavik Marathon

Kolla og Kollý

 

Tók ákvörðun í morgun um að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, skemmtiskokk 3km

Skráði mig líka á www.hlaupastyrk.is/kolbrun, hleyp sumsé fyrir gigtarfélagið.

*****

Decided to run in the Reykjavik Marathon, coming Saturday, only running 3km (about 5 mile).

Kanada

Þegar ég var 17 ára gömul þá skrapp ég til Kanada í hálft ár. Passaði þar börn og kynntist ýmsu fólki sem ég hef svo kynnst aftur með tilkomu "Facebook". Þetta var árið 1991. Dvölin stóð yfir frá 10. janúar, stuttu síðar hófst Persaflóastríðið. Ég snéri svo aftur heim í lok júní. Þessi ferð var sú fyrsta sem ég fór til Ameríku, dvaldi eina nótt á Long Island hjá þeim systu og Óla sem voru með þjónustu fyrir fólk sem þurfti að millilenda, daginn eftir flaug ég svo frá La Guardia til Toronto (millilenti eingöngu þar örstutt og kom bara á flugvöllinn) en flaug svo þaðan beint til Regina þar sem ég svo bjó. 

Þremur árum seinna snéri ég aftur og heimsótti fólkið. Þá flaug ég beint til Winnipeg og gisti þar eina nótt á hóteli. Þetta var árið 1994.

Níu árum seinna fór ég svo til Kanada eina ferðina enn og fór til Vancouver í beinu flugi frá Íslandi, febrúar 2003. Yndisleg borg. 

Nú er svo komið að því að ég ætla að halda til Kanada eina ferðina enn. Við Unnur dóttir mín ætlum að skella okkur í mæðgnaferð til Toronto seinni hluta maí og gista þar fimm nætur. Erum svo lukkulegar að hafa þar heimboð. Ég hlakka mikið til að sjá enn eina borgina í Kanada enda landið í miklu uppáhaldi og mun sjálfsagt alltaf vera.

Mig dreymir um að taka einhverntíma Road Trip þvert yfir Kanada og til baka í gegnum Bandaríkin. En það bíður betri tíma.

English version:

Canada here I come once again. This time Toronto will see me and my daughter. Very much looking forward to it. 

Rabbie Burns

The Selkirk Grace

Some hae meat and canna eat,
And some wad eat that want it;
But we hae meat, and we can eat,
Sae let the Lord be thankit.

Have haggis, neeps, and tatties coming out of my ears.
Had a great night dancing Scottish dances as well as eating too much. Will be repeated again next year.

Syndicate content