Íslenska

Reykjavíkurmaraþonið / Reykjavik Marathon

Kolla og Kollý

 Tók ákvörðun í morgun um að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, skemmtiskokk 3km

Skráði mig líka á www.hlaupastyrk.is/kolbrun, hleyp sumsé fyrir gigtarfélagið.

*****

Decided to run in the Reykjavik Marathon, coming Saturday, only running 3km (about 5 mile).

Ábyrgð þolenda ofbeldis

Mikið hefur verið skrifað í netmiðlum um ummæli lögregluþjónsins á www.dv.is.

Ég tel mig skilja hvert hann er að fara í fyrri hluta umræddra ummæla þar sem hann segir :

„Það er líka annað í þessu að það er alltaf undir hverjum og einum komið að vera meðvitaður um það að ef þeir drekka mikið, taka lyf eða fíkniefni þá getur ýmislegt gerst. Vandamálið felst meðal annars í því að fólk leitar ekki inn á við og sér ekki að það er að setja sjálft sig í hættu með drykkju og dópneyslu."

Auðvitað er ábyrgðin alltaf nauðgarans en ég skil að með þessum orðum Björgvins sé hann að reyna að halda forvarnarræðu með því að benda á að manneskja í annarlegu ástandi er útsettari fyrir því að verða fyrir ofbeldi en allsgáð manneskja, þar sem auðveldara er að yfirbuga þá manneskja en edrú.

Þetta er alveg eins og mælt er með því konur séu ekki einar á ferli á næturnar og haldi sig nærri fólki ef þær eru einar á ferð. Ég til að mynda stytti mér aldrei leið yfir Klambratún á leið heim úr bænum heldur hélt mig á Snorrabraut (frekar en Rauðarárstíg sem er fáfarnari) og Miklubraut eins og ég gat á leið heim í Hlíðarnar. Það þýðir ekki að ég hefði verið ábyrg fyrir því að lenda í ofbeldi ef ég hefði gengið ein yfir Klambratúnið en ég hefði sett mig í óþarfa áhættuflokk.

Við getum sumsé gert ákveðna hluti til þess að minnka líkurnar á að verða fyrir ofbeldi. 

Það er seinni hluti ummælanna sem eru alveg fyrir neðan allar hellur: "Oftar en ekki eru þessi mál tengd mikilli áfengisnotkun og ekki á ábyrgð neins nema viðkomandi sem er útsettur fyrir því að lenda í einhverjum vandræðum. Það er erfitt hvað það er algengt að fólk bendir alltaf á einhverja aðra og reynir að koma ábyrgðina yfir á þá. Fólk ætti kannski að líta oftar í eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu sér.“ Þetta er hrikalega illa orðað hjá manninum og kannski trúir hann því virkilega að konur beri ábyrgð á því að vera nauðgað.

Það er staðreynd að til eru menn sem nauðga konum (og körlum líka) og það sem við konur getum gert er jú að forðast hvað mest við getum að koma okkur í þær aðstæður að við liggjum vel fyrir höggi ef slíkir menn eiga leið hjá.

Súpa

041-pola02.jpg

Eldaði súpu í dag fyrir matarboð. Fékk svo góða súpu um daginn hjá Siggu Dóru og vildi endilega prófa sjálf. Hér kemur uppskriftin eins og ég eldaði hana.

-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-

3 msk olía

nokkur hvítlauksrif skorin smátt

einn púrrulaukur skorin smátt

1 græn paprika

1 rauð paprika

1 gul paprika

allt svissað á pönnu og svo fært yfir í stóran pott.

2 msk Arabískar nætur (Pottagaldrar) á að vera Morocco krydd frá NOMU en var ekki til í Hagkaup svo prófaði þetta og var mjög gott.

1 dós rjómaostur settur úti í gumsið og látinn bráðna við vægan hita

1og 1/2 líter soðið vatn með slatta af kjúklingakrafti og grænmetiskrafti (ég nota Tasty sem er fljótandi)

1 flaska Heinz chili sósa (skilst að Heinz sé algerlega málið í þessa súpu)

2 msk Sweet Chili sósa

allt látið malla

1/2 l. matreiðslurjómi bætt út í og látið malla áfram

-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-

Níu nettar kjúklingabringur skornar í litla bita og steiktar upp úr smá olíu kryddað með salti og pipar og svo skellt út í súpuna.

Ég setti svo eina góða sæta kartöflu og nokkrar gulrætur líka og skreytii með ferskum kóríander úr eldhúsglugganum hjá mér.

-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-

Þessi súpa dugði 10 fullorðnum og fimm strákum á aldrinum 8-12 ára (þeir borðuðu misvel) flestir fengu sér einu sinni vel á diskinn og það var örlítið eftir. Hefði verið hægt að setja aðeins meira vatn til að gera meira úr súpunni var talað um 11/2 - 2L.

Ég bar þetta svo fram með tveimur stórum snittubrauðum og tveimur minni snittu hvítlauksbrauðum.

Þetta var rosa gott. Örugglega flott að gera bara rosa matarmikla grænmetissúpu úr þessu eða setja fisk í stað kjúklingsins.

Hún allavega býður upp á allskonar tilfæringar.

2010 flýgur áfram

 Þetta ár hefur gjörsamlega flogið áfram enda endalaust nóg um að vera. Eftir pínu erfiða byrjun á árinu þá tók við ofboðslega góður tími. Ferð til Kanada í maí með Unni minni yndislegustu var mjög góð, við nutum Toronto og fórum í dagsferð og litum á fossana miklu. Niagara falls.Versluðum mikið og áttum gæðastundir saman, nauðsynlegt á vorin þar sem hún hélt svo austur á Klaustur þar sem hún hefur unnið við afgreiðslustörf í Skaftárskála í sumar. Duglega stelpan.

 Mæðgur í Kanada

Svo fékk ég þá flugu í höfuðið að sækja loks um nám sem mig hefur langað í alveg síðan ég kom heim að utan. MPM heitir það og er kennt við Endurmenntun HÍ en tilheyrir verk- og raun. MPM stendur fyrir Master in Project Management og er kennt meðfram vinnu. Verður strembið en án vafa skemmtilegt.

 

Þegar ég fór svo í sumarfrí þann 10. júlí skelltum við Óðinn okkur til Edinborgar en við skiptum á íbúð við fólk þar. Íbúð og bíl. Ofboðslega sniðugt. Við vorum þar í tvær vikur og áttum stórgóðar stundir með vinum okkar þar. Gengum mikið og versluðum MIKIÐ. Öll fjölskyldan ætti því að vera vel klædd í vetur. 

 

 Mæðgin í Edinborg

 

Þá stefni ég á þriðju helgarferðina norður yfir heiðar nú um verslunarmannahelgina.

Fer svo að vinna aftur í næstu viku og hlakka talsvert til. Sigga Dóra elskulegust fer að vinna í grenndinni svo ég sé nú fram á einhverja lönsja með henni svo kemur Unnur mín í bæinn eftir tæpan mánuð og hlakka ég mikið til að knúsa hana. Óðinn hefur verið hjá mér mikið í sumar en er nú farin í frí til pabba síns og verður hjá honum næstu vikurnar. Því ætla ég að nota tækifærið og halda áfram að dytta að hér heima. Losa út dót sem börnin eru vaxin upp úr og svo framvegis. 

Kanada

Þegar ég var 17 ára gömul þá skrapp ég til Kanada í hálft ár. Passaði þar börn og kynntist ýmsu fólki sem ég hef svo kynnst aftur með tilkomu "Facebook". Þetta var árið 1991. Dvölin stóð yfir frá 10. janúar, stuttu síðar hófst Persaflóastríðið. Ég snéri svo aftur heim í lok júní. Þessi ferð var sú fyrsta sem ég fór til Ameríku, dvaldi eina nótt á Long Island hjá þeim systu og Óla sem voru með þjónustu fyrir fólk sem þurfti að millilenda, daginn eftir flaug ég svo frá La Guardia til Toronto (millilenti eingöngu þar örstutt og kom bara á flugvöllinn) en flaug svo þaðan beint til Regina þar sem ég svo bjó. 

Þremur árum seinna snéri ég aftur og heimsótti fólkið. Þá flaug ég beint til Winnipeg og gisti þar eina nótt á hóteli. Þetta var árið 1994.

Níu árum seinna fór ég svo til Kanada eina ferðina enn og fór til Vancouver í beinu flugi frá Íslandi, febrúar 2003. Yndisleg borg. 

Nú er svo komið að því að ég ætla að halda til Kanada eina ferðina enn. Við Unnur dóttir mín ætlum að skella okkur í mæðgnaferð til Toronto seinni hluta maí og gista þar fimm nætur. Erum svo lukkulegar að hafa þar heimboð. Ég hlakka mikið til að sjá enn eina borgina í Kanada enda landið í miklu uppáhaldi og mun sjálfsagt alltaf vera.

Mig dreymir um að taka einhverntíma Road Trip þvert yfir Kanada og til baka í gegnum Bandaríkin. En það bíður betri tíma.

English version:

Canada here I come once again. This time Toronto will see me and my daughter. Very much looking forward to it. 

Alger gufa

hef verið að fara í gufu í hádeginu með vinnufélögunum. Það sem það gerir manni gott.

Vor í lofti

í gærkvöldi fann ég ilm af vori og páskum...

District 9

Sá í gærkvöldi myndina District 9 og hún kom mér virkilega skemmtilega á óvart. Ég hafði heyrt því fleygt að hún og Avatar væru með svipaðan söguþráð og það er ýmislegt til í því (geimverur, mennirnir frekir og stjórnsamir, einn sem áður á móti verður með etc.) en myndirnar eru engu að síður eins ólíkar og hægt er.

Avatar er vissulega ágætlega flott en frekar leiðinleg og fyrirsjáanleg (það var ekkert sem kom á óvart í henni) meðan að District 9 er unnin eins og heimildamynd, tekin í Suður-Afríku, skemmtilegt að heyra Suður-afríska hreiminn og eins og ég áður sagði kom á óvart. Ég kom líka sjálfri mér á óvart með það hvað ég hafði gaman af "splatternum" í henni. Ég viðkvæma sálin :o)

Stuðningsyfirlýsing við Elfi Logadóttur

Ég lýsi hér með yfir stuðningi við Elfi Logadóttur í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Ég hef þekkt Elfi í um 25 ár. Auk þess að vera virkilega hæf sökum menntunar og starfsreynslu og hafa víðtæka þekkingu á öllu mögulega þá er hún líka frábær vinkona sem er ávallt hægt að leita til þegar meta þarf hin ýmsu persónulega mál og aðstæður og hægt að treysta því að allar mögulegar lausnir séu skoðaðar, vegnar og metnar. Ég treysti henni 100%.

Miðjan

Skráði mig sem penna á Miðjunni og sendi inn smá pistil svona til að byrja einhvernveginn strax. Krimmar og annað fólk.

Syndicate content