Íslenska

Laugavegurinn

Laugavegurinn 2011 082.JPG

 Skellti mér á Laugaveginn (hálendis) og hef sjaldan átt jafn stórkostlega upplifun og þessa fjóra daga.

Yndisleg samvera við svo frábært fólk, kynntist nýju fólki, kynntist fólki betur og labbaði og labbaði og labbaði.

Unaðslegt.

Frábær endir á frábæru sumarfríi.

 

IPMA advanced course í Hilleröd.

Hópurinn

IPMA (International Project Management Association), hið alþjóðlega verkefnastjórnunarfélag, heldur reglulega framhaldsnámskeið fyrir verkefnastjóra þar sem þeim gefst tækifæri á að auka við þekkingu sína á ýmsum sviðum. Þetta árið eru þessi framhaldsnámskeið haldin tvisvar. Hið fyrra fór fram nú á dögunum í Hillerød, Danmörku nánar tiltekið 10.-12. Mars 2011 og hið seinna fer fram í Mílanó, Ítalíu dagana 7.-9. nóvember. Félagar í verkefnastjórnunarfélagi Íslands eiga rétt á að sækja þessi námskeið.  IPMA framhaldsnámskeiðin eru ætluð til þess að útvíkka verkefna og verkstofna stjórnunar hæfileika, hvort sem ætlunin er að auka reynsluna eða bæta hæfni við notkun aðferða eða framkomu. Þeir eru mjög viðeigandi fyrir reynda verkefnisstjóra, verkstofnastjóra, verkefna ráðgjafa og þá sem þjálfa verkefnisstjóra. Eins er mælt með þeim fyrir þá sem ætla að taka B og A vottun.

Ég sótti námskeið í „Coaching and falicitating as a lever for efficiency in projects“ en þar var farið ítarlega í þjálfun einstaklinga og þess að nota þjálfun sem vogarafl við að greiða fyrir skilvirkni í verkefnum. Allt í allt voru sex námskeið í boði og heildarfjöldi þátttakanda var um 70 manns með leiðbeinendum. Á mínu námskeiði voru 10 verkefnastjórar, þrír karlmenn og sjö konur auk Merle Runge leiðbeinanda. Merle var frábær og henni tókst að hrista hópinn saman á mjög skömmum tíma og mikil samkennd náðist strax í hópnum. Námskeiðið hófst formlega kl. 9 á fimmtudagsmorgni, kvöldið áður var smá hittingur fyrir þá sem voru mættir á svæðið, með kynningu fyrir allan hópinn þar sem Morten Fangel sá um að kynna hópinn og leiðbeinendur. Dagskráin var þétt og lauk dagskrá míns hóps ekki fyrr en um 18.30 um kvöldið en sumir hópar voru að til 20.00 en þá hófst sameiginlegur kvöldverður. Það kvöld var skemmtiatriði sem allir eða velflestir tóku þátt í og hristi það hópinn enn betur saman. 
 
Dagur tvö á námskeiðinu hófst svo snemma eða kl. 8.30 og Merle hin frábæra vakti okkur með hressandi æfingu. Æfingar dagsins snérust um að leiða hóp í verkefnavinnu og var tilgangurinn að þjálfa okkur í að stýra fundum og vinnustofum í verkefnum. Við gátum nýtt vel það sem við höfðum lært daginn áður í að vinna með aðeins einni manneskju í að finna lausn, um mikilvægi þess að beita virkri hlustun, spyrja opinna spurninga, og hjálpa þeim að svara eigin pælingum og vandamálum. Nauðsynlegt er að leggja af stað með markmið í huga og ekki æða áfram stefnulaust. Stýring (facilitating) funda og vinnustofa krefst skipulagningar og áætlunar og við fórum yfir þá þætti sem mikilvægt er að hafa í huga í slíkum aðstæðum. Hvenær verkefnisstjóri getur sinnt hlutverki „facilators“ og hvenær best er að fá annan eða alveg utanaðkomandi til þess að sinna því hlutverki. Farið var yfir hópamyndun og módel Tuckmans notað sem fyrirmynd svo og hvers verkefnisstjóri þarf að gæta að til þess að greiða fyrir hópamynduninni. Það var mjög gott að vinna með ólíkum verkefnisstjórum og fá að reyna aðferðirnar jafnóðum með raunhæfum verkefnum. Við vorum hvött til að gera mistök því af þeim lærum við best. Merle stýrði okkur mjög vel og beitti aðferðunum sem hún var að kenna okkur markvisst og eftir því sem leið á vorum við í hópnum farin að greina hvort hún vildi halda umræðunni áfram eða loka henni eftir því hvers kyns spurningum hún spurði. Því um leið og hún fór að nota lokaðar spurningar þá þýddi það að við þyrftum að halda áfram. Deginum lauk með því að einn hópur fékk tíma til að stýra hinum í vinnustofu og var okkur úthlutað hlutverkum hverju og einu. Mjög skemmtilegt. Að þessu sinni vorum við að til að verða 19.30 um kvöldið svo það rétt gafst tími til að hoppa í sturtu og fara í sparifötin áður en kvöldverður hófst. Það var örlítið lélegri mæting þetta kvöldið þar sem fólk var vel þreytt eftir stífa dagskrá síðustu tveggja daga og enn einn dagur eftir sem hefjast átti snemma. Það stoppaði ekki mig og mína Danfoss gaura í að spila pool og þythokkí fram yfir miðnætti. Laugardagurinn hófst snemma. Við þurftum að klára að skrá okkur út af hótelinu fyrir byrjun námskeiðsins í viðbót við að borða morgunverð og námskeiðið hófst hálfníu. Þennan dag hófum við með því að heimsækja eitt annað námskeið sem okkur leist vel á og ég leit inn í „Leading Projects from a Distance“. Þar sem fjallað er um hindranir og möguleika þess að vinna í fjarteymum. Þrátt fyrir mína menntun og reynslu af fjarnámi og kennslu þá myndi ég gjarna vilja sitja þetta námskeið því það er alltaf eitthvað sem hægt er að bæta við sig. Námskeiðið var haldið í Pharmakon hótelinu sem er ráðstefnuhótel. Aðstaðan þar er hreint út sagt frábær en ekki er hægt að segja að hún sé endilega ódýr. Nóttin þar kostar 130 evrur um það bil og innifalinn er morgunverður sem var verulega vandaður. Allt brauð er bakað á staðnum, mjólkin, smjörið og eggin lífræn í það minnsta. Klassískur morgunverður beikon, pylsur, egg bæði linsoðin og hrærð, brauð, álegg, safar og kaffi og te. Þá var allur matur sem var innifalinn í námskeiðinu hinn vandaðasti og allir drykkir auk millibita voru innifaldir. Hótelið bauð upp á aðstöðu til líkamsræktar, hægt var að fá lánuð hjól og í kjallaranum var aðstaða til að spila pool, þythokkí, wii tölva og sjónvarp. Allt í allt var þessi upplifun mjög góð og ég myndi gjarna vilja fara aftur.
 
Þessi grein var skrifuð fyrir MPM-blaðið en varð að víkja fyrir öðru efni.

 

Danmörk aftur!

 Er stödd í Danmörku á námskeiði hjá IPMA. Algerlega frábær fyrsti og jafnframt langur dagur að baki. Ég er á námskeiði sem fókusar á markþjálfun og hópstjórnun. Gríðarlega áhugavert allt saman og opnar vissulega augu manns á nýjum möguleikum. Er með toppfólki, erum samtals 10 í mínum hluta sjö karlmenn og þrjár konur, allt danir nema ég, leiðbeinandinn sem er þýsk og einn finni. Við hófum daginn klukkan 9 í morgun og honum lauk kl. 18.30. Klst í mat og á þeim tíma hjólaði ég í 20 mínútur svo nett dösuð en kát kona sem liggur undir mjúkri sæng og slakar á eftir heita sturtu svona rétt áður en kvöldverður hefst. 

Maturinn hérna er geggjaður. Þvílíkt flottar veitingar innifaldar í þessu öllu. Ökologísk egg, mjólk, og sjálfsagt fleiri matvara, ávextir og margréttaður hádegisverður. Drykkir allir "included" líka og í dag drakk ég til að mynda hindberjagos með matnum sem framleitt er af Coca-Cola company - mmmm hindber minna mig alltaf á Noreg því þar smakkaði ég hindberjasaft í fyrsta sinn.

Námskeiðið er haldið á ráðstefnuhótelinu Pharmakon og aðstaðan er til fyrirmyndar. Hægt að fá lánuð hjól, smá líkamsrækt í kjallaranum ásamt pool borði, þythokkíi, og Wii tölvu. Verður sjálfsagt tekið á því þar í kvöld.

Þetta námskeið er ætlað advanced verkefnastjórum svo mér finnst ég virkilega lánsöm að hafa fengið þetta tækifæri. Gott networking og aukin innsýn í störf verkefnastjóra. 

Hlakka mikið til á morgun. Þá heldur námskeiðið áfram og við byrjum kl. 8.30 - vonandi hættum við ekki alveg jafnseint og í dag. Væri gott að hafa smá tíma til að hjóla um bæinn ef veður leyfir. Í hádeginu er boðið upp á ferðir og ég valdi að fara að skoða Frederiksberg kastalann. Tek myndir og set inn á morgun.

Svo fer ég að hitta Bryndísi á laugardaginn - hlakka til að knúsa mína góðu vinkonu. Og svo heim og nóg að gera í sex vikur þar til skólanum lýkur.

Lok janúar

Janúar - check

Burns Supper - check (heppnaðist frábærlega vel)

Er asskoti ánægð með lífið, allt leikur í lyndi og lífið er gott, frekar mikið að gera reyndar en það er sem betur fer tímabundið meðan skólinn varir. Little Miss Busy

Ýmislegt í gangi, fullt af breytingum framundan meðal annars í vinnu. Enn einu sinni færist ég til húsnæðislega en vona að ég haldi starfinu enn um sinn þó virðist ekkert öruggt þar hjá borginni frekar en öðrum fyrirtækjum. Góðum vini mínum var sagt upp störfum í morgun en hann er reyndar hjá sviði sem mikill samdráttur hefur verið hjá.

Námið gengur vonum framar. Fæ góðar einkunnir en mestu skiptir að ég er að fá gríðarlega mikið út úr þessu félagslega og andlega líka. Námið er hagnýtt og nýtist rosalega vel. Mæli hiklaust með því. Býðst svo að fara til DK á námskeið í IPMA Advanced Course í mars og er að vonast til þess að það gangi eftir. Fæ sumsé ókeypis á námskeiðið en þarf að redda mér styrk fyrir ferða- og gistikostnaði. 

xoxo

ekki-gossip-girl

 

 

Október - Brjóstakrabbamein

 Hann er kominn enn eitt árið, október með haustið í allri sinni dýrð.

Það sem einkennir október hvað mest er samt bleika slaufan, söfnun fyrir rannsóknum á brjóstakrabbameini.

Þetta málefni er alltaf mjög nálægt hjarta mínu þar sem móðir mín fékk brjóstakrabbamein og greindist einmitt í október 2002. Hún er núna búin að vera án lyfja í tvö ár  og greinist hrein. Af henni var tekið brjóst og eitlar í holhönd. Þar voru níu eitlar sýktir. Hún fór í allt ferlið, aðgerðina, lyfjameðferðina, geislann og tamoxifen. Hún var 54 ára þegar hún greindist.

Móðuramma mín greindist að mig minnir 58 ára. Hún fór líka í brjóstnám og lfiði næstum 20 ár til viðbótar. 

Ég skrifaði grein um brjóstakrabbamein árið 2002 og fann út að þrátt fyrir að þessar tvær konur sem eru svona skyldar mér hafi fengið brjóstakrabbamein þá setur það mig ekki í mikinn áhættuhóp. Ef hinsvegar ein af systrum mömmum (þær eru sex með mömmu) fær líka brjóstakrabbamein þá margfaldast áhættan fyrir mig.

Það sem setur okkur konur í áhættuhóp er ofþyngd, reykingar og pillan. Ég held mér í kjörþyngd, hætti að reykja 2001 en tek því miður enn pilluna. Einn dag mun ég hætta því.

Mamma reykti aldrei en hún var of feit líkt og amma, auk þess sem hún tók hormóna vegna breytingaskeiðsins, en sumar rannsóknir hafa tengt þá hormóna við brjóstakrabbamein. 

Eitt sem ekki allir átta sig á er að brjóstakrabbamein og brjóstakrabbamein er ekki alltaf það sama, það eru til ýmsar tegundir af krabba sem greinist í brjóstum og karlar geta líka fengið brjóstakrabba.

Ég hvet alla til að styðja málefnið. Ég keypti slaufu í morgun og prýðir einmitt mynd af henni hægra hornið uppi á þessari síðu. 1500 krónur eru ekki mikið fyrir eina manneskju en ef margir styðja málefnið þá mun upphæðin skipta sköpum.

Eins og segir í auglýsingunni í Fréttablaðinu í dag...Bleika slaufan

"fyrir allar dætur

ömmur-mömmur-systur-vinkonur-frænkur ...

Berum heilbrigði þeirra fyrir brjósti."

 

Syndicate content