Íslenska

Komin hringinn

Ár liðið síðan við fluttum heim.
Heilt ár, einn hringur, eins og maður hafi aldrei farið. Nema bara, fullt af nýjum vinum sem heita erlendum nöfnum og sumir íslenskum.

Er lasin. Sem sem er svo sem ágætt. Betra núna en seinna. Er að fara til New York eftir rúmar 2 vikur. Frí í skólanum hjá krökkunum. Óðinn var svo heppinn að fá að fara í sveitina til Svövu frænku og unir sér víst ofboðslega vel þar með frændum sínum Arnari Breka og Grími Geir.
Enda í góðum höndum.

Afhverju er janúar og febrúar svona fitandi mánuðir?!

09.09

Í dag á móðir mín afmæli -
Dagurinn er þar af leiðandi tileinkaður henni!

To my mother - happy birthday - today is your day!

Lífið...

heldur áfram og áfram og áfram.

Sem betur fer stendur það ekki í stað.

In Edinburgh / í Edinborg

Will be in Edinburgh until the 25th of July.

Verð í Edinborg til 25. júlí.

ávalt vs. ávallt

Í þessari frétt á mbl.is segir: "Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, sagði atburðinn í nótt minna Breta á að landið eigi ávalt yfir höfði sér hættu á hryðjuverkum og alltaf þyrfti að vera á verði." Að vera ávalur felur í sér að vera bungulaga og er tildæmis talað um að hinn eða þessi sé ávalur þegar átt er við að manneskjan sé feitlagin. Rétt hefði verið í þessu tilfelli að nota rétta mynd af orðinu ávallt sem þýðir aftur að eitthvað geti alltaf gerst eða ætíð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég sé þetta orð skrifað vitlaust hjá mbl.is.

Syndicate content