Uppskriftir

Hummous

IMG_4822.jpg

Bjó til hummous um daginn og fylgdi í meginatriðum uppskriftinni á kjúklingabaunakrukkunni. 

1 krukka kjúklingabaunir (Sollu)

2 msk hvítt tahini (ríflega mér finnst tahini gott)

sítrónuskvís (umþaðbil 1 msk)

2 msk tríó trópí (átti að vera appelsínusafi en átti hann ekki til)

hvítlaukur eftir smekk 1-2 rif (átti ekkert til svo setti smá hvítlaukssalt bara)

 

steinselja (átti bara þurrkaða) 

1 msk tamari sósa (ég setti sojasósu því ég átti ekki til tamari)

svo bætti ég við:

ferskum basil (úr glugganum hjá mér)

ferskt kóríander (úr glugganum hjá mér)

1 tsk Arabískar nætur (frá Pottagöldrum)

 

Allt maukað í matvinnsluvél eða einhverju slíku.

Svo skúbbaði ég bara öllu aftur í krukkuna undan baununum.

Hrikalega gott með hrökkbrauði.

Súpa

041-pola02.jpg

Eldaði súpu í dag fyrir matarboð. Fékk svo góða súpu um daginn hjá Siggu Dóru og vildi endilega prófa sjálf. Hér kemur uppskriftin eins og ég eldaði hana.

-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-

3 msk olía

nokkur hvítlauksrif skorin smátt

einn púrrulaukur skorin smátt

1 græn paprika

1 rauð paprika

1 gul paprika

allt svissað á pönnu og svo fært yfir í stóran pott.

2 msk Arabískar nætur (Pottagaldrar) á að vera Morocco krydd frá NOMU en var ekki til í Hagkaup svo prófaði þetta og var mjög gott.

1 dós rjómaostur settur úti í gumsið og látinn bráðna við vægan hita

1og 1/2 líter soðið vatn með slatta af kjúklingakrafti og grænmetiskrafti (ég nota Tasty sem er fljótandi)

1 flaska Heinz chili sósa (skilst að Heinz sé algerlega málið í þessa súpu)

2 msk Sweet Chili sósa

allt látið malla

1/2 l. matreiðslurjómi bætt út í og látið malla áfram

-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-

Níu nettar kjúklingabringur skornar í litla bita og steiktar upp úr smá olíu kryddað með salti og pipar og svo skellt út í súpuna.

Ég setti svo eina góða sæta kartöflu og nokkrar gulrætur líka og skreytii með ferskum kóríander úr eldhúsglugganum hjá mér.

-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-x-

Þessi súpa dugði 10 fullorðnum og fimm strákum á aldrinum 8-12 ára (þeir borðuðu misvel) flestir fengu sér einu sinni vel á diskinn og það var örlítið eftir. Hefði verið hægt að setja aðeins meira vatn til að gera meira úr súpunni var talað um 11/2 - 2L.

Ég bar þetta svo fram með tveimur stórum snittubrauðum og tveimur minni snittu hvítlauksbrauðum.

Þetta var rosa gott. Örugglega flott að gera bara rosa matarmikla grænmetissúpu úr þessu eða setja fisk í stað kjúklingsins.

Hún allavega býður upp á allskonar tilfæringar.

Smúðí

 

Dásamlegt að fá sér góðan smúðí á morgnana.

ég set ca.

1 banana

1 bolla frosin ber (mér finnst best að nota blönduð)

1 bolli sojamjólk eða hrísgrjónamjólk

ef mjólkin er ósæt þá set ég stundum smá agave síróp en þess þarf ekki neitt frekar.

 

Besta ráðið er að skutla hráefninu í blandarann og láta mixast meðan maður klæðir sig eða eitthvað á morgnana, hella svo í glas og um leið setja blandarann í vaskinn og láta heitt vatn renna í strax (mjög einfalt og mikilvægt). Drekka svo smúðíinn meðan maður klárar að hafa sig til, ef maður hefur tíma þá lesa blaðið eða ef enginn tími og maður er alveg á hlaupum út skutla í ferðaglas og hafa með sér.

Kotasælubollur

30 gr smjör

100 gr. kotasæla

5 dl. mjólk (ég notaði léttmjólk)

Hitað saman í potti og látið volgna niður í svona 38°c.

 

650 gr hveiti

1 tsk salt

2 bréf þurrger (24 gr) ps. frænka mín segir mér að nóg sé að nota 1 bréf.

Blandað saman í skál og hellt út í mjólkurblönduna þegar komið í rétt hitastig.

Látið hefa sig í lágmark hálftíma.

Deigið slegið niður, bollur búnar til og settar á plötu. Látnar hefa sig aftur í smátíma.

 

1 egg

3 msk sesamfræ

Bollurnar penslaðar með eggi og sesamfræjum dreift yfir.

Bakað í u.þ.b. korter við 225°c í forhituðum ofni.

Syndicate content