Edinburgh

Lok janúar

Janúar - check

Burns Supper - check (heppnaðist frábærlega vel)

Er asskoti ánægð með lífið, allt leikur í lyndi og lífið er gott, frekar mikið að gera reyndar en það er sem betur fer tímabundið meðan skólinn varir. Little Miss Busy

Ýmislegt í gangi, fullt af breytingum framundan meðal annars í vinnu. Enn einu sinni færist ég til húsnæðislega en vona að ég haldi starfinu enn um sinn þó virðist ekkert öruggt þar hjá borginni frekar en öðrum fyrirtækjum. Góðum vini mínum var sagt upp störfum í morgun en hann er reyndar hjá sviði sem mikill samdráttur hefur verið hjá.

Námið gengur vonum framar. Fæ góðar einkunnir en mestu skiptir að ég er að fá gríðarlega mikið út úr þessu félagslega og andlega líka. Námið er hagnýtt og nýtist rosalega vel. Mæli hiklaust með því. Býðst svo að fara til DK á námskeið í IPMA Advanced Course í mars og er að vonast til þess að það gangi eftir. Fæ sumsé ókeypis á námskeiðið en þarf að redda mér styrk fyrir ferða- og gistikostnaði. 

xoxo

ekki-gossip-girl

 

 

Burns Supper

Laugardaginn 29. janúar 2011 mun Edinborgarfélagið í 34. sinn standa fyrir Burns Supper.

Samkoman fer fram í Veislusalnum, Skógarhlíð 20, Reykjavík  og hefst kl. 19.00 og lýkur kl. 01.00.

Veislustjóri

Gísli Marteinn Baldursson

Haggisinn ávarpaður

Haggisinn verður ávarpaður með hefðbundnum hætti af David Jarron.

Að venju verður í boði haggis frá McSween of Edinburgh 

Ræðumaður

Súsanna Svavarsdóttir

Haggis, Neeps & Tatties og smá viský lögg

Happdrætti

Uppboð á Haggis 

Dans og lifandi tónlist

Þeir sem dvalið hafa um lengri eða skemmri tíma í Skotlandi ásamt öllum þeim sem áhuga hafa á skosk-íslenskum menningarsamskiptum eru boðnir velkomnir til að hittast og rifja upp gömul kynni. 

Bretar búsettir á Íslandi í lengri eða skemmri tíma eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Aðgangseyrir kr. 4.900

[Fordrykkur, matur, kaffi og sætindi innifalið, áfengir og óáfengir drykkir seldir á staðnum.]

[Hægt að greiða aðgangseyri með greiðslukortum]

Gott væri ef þú létir vita um þátttöku og fjölda gesta tímanlega.

Það er hægt með eftirfarandi hætti:

Á netfang: edinborgarfelagid@kolbrun.is og í síma 821-9984 

Á síðu Edinborgarfélagsins á Facebook—finnst ef slegið er inn Edinborgarfélagið.

Stjórnin:

Margrét Sæmundsdóttir 

Kolbrún Hlín Hlöðversdóttir

Guðbjörg S. Bergsdóttir

Sigurður Arnljótsson

Stefán Pálsson

2010 flýgur áfram

Þetta ár hefur gjöMæðgur í Kanadarsamlega flogið áfram enda endalaust nóg um að vera. Eftir pínu erfiða byrjun á árinu þá tók við ofboðslega góður tími. Ferð til Kanada í maí með Unni minni yndislegustu var mjög góð, við nutum Toronto og fórum í dagsferð og litum á fossana miklu. Niagara falls.

Versluðum mikið og áttum gæðastundir saman, nauðsynlegt á vorin þar sem hún hélt svo austur á Klaustur þar sem hún hefur unnið við afgreiðslustörf í Skaftárskála í sumar. Duglega stelpan.

Svo fékk ég þá flugu í höfuðið að sækja loks um nám sem mig hefur langað í alveg síðan ég kom heim að utan. MPM heitir það og er kennt við Endurmenntun HÍ en tilheyrir verk- og raun. MPM stendur fyrir Master in Project Management og er kennt meðfram vinnu. Verður strembið en án vafa skemmtilegt.

Þegar ég fór svo í sumarfrí þann 10. júlí skelltum við Óðinn okkur til Edinborgar en við skiptum á íbúð við 

Mæðgin í Edinborg

fólk þar. Íbúð og bíl. Ofboðslega sniðugt. Við vorum þar í tvær vikur og áttum stórgóðar stundir með vinum okkar þar. Gengum mikið og versluðum MIKIÐ. Öll fjölskyldan ætti því að vera vel klædd í vetur.  

Þá stefni ég á þriðju helgarferðina norður yfir heiðar nú um verslunarmannahelgina.

Fer svo að vinna aftur í næstu viku og hlakka talsvert til. Sigga Dóra elskulegust fer að vinna í grenndinni svo ég sé nú fram á einhverja lönsja með henni svo kemur Unnur mín í bæinn eftir tæpan mánuð og hlakka ég mikið til að knúsa hana. Óðinn hefur verið hjá mér mikið í sumar en er nú farin í frí til pabba síns og verður hjá honum næstu vikurnar. Því ætla ég að nota tækifærið og halda áfram að dytta að hér heima. Losa út dót sem börnin eru vaxin upp úr og svo framvegis. 

 

Rabbie Burns

The Selkirk Grace

Some hae meat and canna eat,
And some wad eat that want it;
But we hae meat, and we can eat,
Sae let the Lord be thankit.

Have haggis, neeps, and tatties coming out of my ears.
Had a great night dancing Scottish dances as well as eating too much. Will be repeated again next year.

On the note of HCI and Usability

A link to a short article on the use of technology to find missing persons!

The link

The stepson of my supervisor at Napier has gone missing, the article is the description of her husband's experience with Social Networks in the search for the missing son.

Syndicate content