Edinburgh

Helpdesk á miðöldum

Birta

Við ungi maðurinn erum komin heim í Warrender Park. Merkilegt hvað það er bjart í Edinborg þó ég viti að það muni skyggja snemma í dag þá veit ég þó að það er bjart þegar við vöknum í fyrramálið. Kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað það er dimmt heima á Íslandi. Ég átti mjög góða daga heima. Ekkert leystist svo sem með vinnu og búsetumál en ég geri ráð fyrir því að næst þegar við Óðin komum heim þá verði það til að vera en ekki í heimsókn. Eins og ég hef komið að áður þá fylgja þessu mjög blendnar tilfinningar en það rann þó upp fyrir mér ljós nú um hátíðirnar að á Íslandi vil ég vera. Verður líka svo allt annað þegar ég verð aftur komin með heimili þar. Heimsóknir og að vera upp á aðra komin jafnast náttúrulega ekki á við það þó ég sé að sjálfsögðu þakklát þeim sem ég hef verið hýst af þetta eina og hálfa ár síðan ég flutti úr Barmahlíð 30. Eníhú. Það bíður mín heilmikil vinna næstu 3 vikurnar en svo er þessu líka lokið. Aldrei aftur námsmaður (hehe aldrei að segja aldrei ég veit).

Princes Street / Prinsastræti fyrir jólin

Enn enginn snjór...

Well. Tíminn líður ótrúlega hratt. Sem er kannski bara jákvætt þannig... Ég er búin að vera alveg á fullu en tók tvo tíma á miðvikudaginn í að skella mér í Ikea með Siggu Dóru beib og við fjárfestum í pínu jóló dóti, og þegar ég segi pínu þá meina ég pínu. Það er afskaplega kósí í stofunni hjá mér þó ég segi sjálf frá. Sakna þess auðvitað að geta ekki boðið vinum og fjölskyldu á Íslandi í heimsókn á yndislega heimilið mitt en svona er það náttúrulega þegar maður býr fjarri fólki.

Við Óðinn skelltum okkur í aðventumessu niður í St. Johns á horninu á Princes Street og Lothian Road í dag. Þetta var svona Íslendingamessa og var mjög huggó. Verð að segja að Óðni fannst messan frekar erfið en hann naut þess að fá kakó og kökur á eftir :) svo fékk hann líka nýjan leik í Game á eftir sem hjálpaði.

Það er laugardagur og ég tók að mér að fyrir nokkrum vikum síðan að horfa á X-factor sem er alltaf á laugardögum en svo datt ég inn í að horfa á Strictly Come Dancing svo laugardagskvöldin eru því tveir þættir í röð sem overlappa aðeins. Get ekki valið á milli. Annars vegar tónlist og hinsvegar samkvæmisdansar - æði !!!
Allt í lagi í kvöld því ég ákvað að hvíla mig vel og safna orku í lokasprettinn sem hefst á mánudaginn. Ætla að sofa út á morgun, sinna syninum, og klára að þrífa.

Er farin að hlakka til að koma heim og knúsa dótturina !!

í fréttum er þetta helst....

Það er kalt í Edinborg en fallegt. Eitt merki kuldans er tíðari ummerki spendýrs af músaætt sem sækir inn í húsakynni fólks til þess að leita sér matar. Við Óðinn vorum í sukkstuði á mánudagskvöld og snæddum nachos með osti* með hinu 'eðal' sjónvarsefni Amazing Race sem sonurinn tilkynnti mér að væri hans uppáhalds þáttur!!!** Allavega, eitthvað fór nú niður á teppið að ég tel þar sem daginn eftir (í gær)var að finna talsvert magn af músaskít á teppinu nærri þar sem við sátum. Ég að sjálfsögðu orðin þessu þrælvön og kippi mér ekki upp við svona lagað lengur svo þetta var bara þrifið upp og stofan 'húveruð'. Áðan var ég svo að setja í þvottavél (afar áhugavert ég veit) og þá rak ég augun í örlítið af þessum litlu brúnu líka. Inni í 'scullery' er ég líka með ísskápinn og því hef ég haft þar lítið box með músaeitri sem ég flutti með mér af 117 og sá ég nokkur ummerki þess einnig að mús/mýs*** hefðu snætt eitrið og vakti það hjá mér smá samviskubit**** en líka ótta við að finna nú einhverja rotnunarfýlu næstu daga.*****

Nú ég er á lokasprettinum í ritgerðarskrifum. Stefnan er að þetta verði allt búið fyrir jól. Hefði að sjálfsögðu viljað vera löngu búin en þegar maður er að kenna eitt stykki námskeið í fjarnámi og veita aðstoð í tölvuveri hér 6 tíma á viku þá er fljótt að sneiðast af tímanum auk þess sem ég sinni syninum að sjálfsögðu afbragðsvel.

Það hefur enn ekki komið niður eitt einasta snjókorn en fyrir sléttu ári síðan (á föstudaginn kemur) þá snjóaði á okkur í fyrsta sinn þann veturinn. Man þetta svo afbragðsvel því pabbi var hjá okkur í heimsókn . Þessi mynd var einmitt tekin þá. Talandi um gestakomur. Má ég minna á að það er gaman að fara til útlanda að versla fyrir jólin og hjá mér er pláss wink wink...

Og talandi um jólin. Ég mun koma heim í jólafrí. Íris elskan hefur gerst svo góð að lána mér slotið sitt þar sem hún verður stödd á Tenerife um jólin, verst að við náum ekki að sjást þar sem hún fer daginn áður en ég kem og ég fer morguninn daginn sem hún kemur. En dagsetningarnar eru sumsé 22. des - 4. jan.

Enn er ekkert komið á hreint um heimflutninga. Finnst það ekki par spennandi að flytja heim í lok jan eða byrjun feb svona veðurfarslega séð, svo er ástandið heima náttúrulega alveg fáránlegt. Veit ekki hvernig ég á að fara að því að finna húsnæði... til að kaupa húsnæði sem hentar litlu fjölskyldunni minni stærðarlega séð er verið að tala um svona 20 milj. og þegar maður á 'next to no money' þá þýðir það megnið í lán og afborganir uppá sirka 100-120 þús. Svo kemur auðvitað allt annað oná. EN og þetta er stórt EN það er ekkert betra að leigja. Sem dæmi þá er til leigu 69 fm. 3 herb. íbúð í Skipholti (aðeins 2 bedr.) á 118 þúsund!!! Skrifa nú bara eins og Unnur *wtf*. En ég held að við séum nú alveg komin með nóg þannig lagað séð og tilbúin að snúa aftur á klakann og verður það alveg örugglega í síðasta lagi í sumar. Fer allt eftir vinnumálum og húsnæðismálum að sjálfsögðu.

Man svo sem ekki mikið meira til að 'reporta' svo ég held ég snúi mér að skrifum um notkun upplýsingatækni í skólastarfi.

*dreifir nachos/doritos á disk og setur ostsneiðar yfir og hitar í örbylgju í 1 mín. gott að skera rauða papriku og dreifa yfir líka - tek fram að þetta er að sjálfsögðu alger fitubomba enda alls ekki oft í boði.

** þar sem ég hef ekki verið áskrifandi að Stöð 2 síðan um aldamót þá spurði ég hann hvar hann hefði séð þennan þátt og jú það var einhverntíma hjá Döggus sys (líklega fyrir löngu síðan)

*** einhver sagði einusinni að þar sem þú sérð eina mús eru pottþétt átta í leyni

****ég er þess næsta fullviss að ég hafi verið kaþólsk í síðasta lífi því ég þjáist af krónísku samviskubiti

*****sko það sem gerist er að mýsnar éta eitrið fara svo undir gólfborðin eða inní veggina og drepast þar. Þá gýs upp nokkur lykt sem er ekki mjög spennandi að hafa en hún hverfur á nokkrum dögum því líkin þorna svo hratt upp. Eruð þið ekki ánægð að ég sagði ykkur frá þessu

OG KOMMENTA SVO******

******til þess að kommenta þarf að 'registera' sig og þá fæ ég póst um að viðkomandi (þú vonandi) viljir fá aðgang að blogginu og þá segi ég ok og þá getur þú kommentað. Þarf bara að registar einu sinni til að geta kommentað hvenær sem er...

A Winters Day

Winters day is come
In winter it is cold
and you can throw snowballs at each other

and make snowmans
and watch the snow come down from the sky
123 456789......

by Odinn...

...sem kom heim með þetta í dag úr skólanum.

...og þá eru að koma jól...

Snillingarnir hjá Starbucks opnuðu nýtt kaffihús rétt við skólann minn í vor svo ferðum mínum þangað hefur fjölgað talsvert undanfarna mánuði. Eru með mjúka sófa og soja cappuccino sem Café Grande hefur ekki þó mér finnist kokkurinn þar alltaf jafn sjarmeerandi eitthvað (skil reyndar ekki hvað það er sem ég sé við hann en...það breytir ekki neinu því hann er giftur). Vá hvernig fór kaffital út í karlatal hehe.. mætti halda að það væri komin tími á eitthvað...

eníhú Starbucks... sumsé á þriðjudaginn var Halloween og allt inni á Starbucks skreytt í stíl við það og allir í spúkí stuði, svo rann upp 1. nóvember og viti menn jólin í næsta mánuði og Starbucks komið með rauða jólabolla og skreytingar og svo fleira.. get sætt mig við að jólakort og pappír og svona sé komið í sölu en full-blown skreytingar er kannski fullsnemmt. Þori varla niður á Princes Street...

HALLOWEEN

myndasíða hér.... hallóvín

Hin keltneska hátíð sem dregur nafn sitt af all saints eve er í dag. Við Óðinn keyptum grasker á sunnudaginn í athugið ekki súpermarkaðnum ASDA-Walmart heldur Hypermarkaðinum eins og stendur á skilti þar rétt hjá. Eníhú...
við komum heim í dag og skófluðum úr blessuðu graskerinu og bjuggum til svona spúkí grasker lukt og svo notaði ég innvolsið og bjó til graskerssúpu eftir uppskrift úr Sollu Smörtu bókinni (aka Grænn kostur Hagkaupa). Súpan var afskaplega góð þó Óðinn hafi ekki alveg kunnað að meta hana.
Nú er Óðinn í stuði og langar pínu út að gera svona "trick or treat" dæmi sem í raun og veru er samkvæmt skosku hefðinni líkt því sem gert er á Íslandi og heitir geysing ef ég er að skrifa það rétt en í því felst að börnin verða að syngja eða segja brandara eða performa á einhvern hátt til að eiga nammið skilið. Við förum út eftir smá og leyfum honum að banka hjá þeim sem við þekkjum í nágrenninu...

Lambahryggur og ís með ávöxtum

Var með matarboð í gær, keypti lambahrygg í fríhöfninni og bauð Erin og Igor í ekta íslenska sunnudagssteik. Þau voru rosalega ánægð með matinn og þetta var svaka gaman.
Ætlaði að skrifa eitthvað ákaflega gáfulegt en nenni því svo ekki ... bið að heilsa.

Merkilegt þetta líf

Við Óðinn erum komin aftur heim til Edinborgar og við erum bara bæði alveg jafn "dazed and confused" með það hvar við eigum heima. Okkur líður svo ofsalega vel hérna en á Íslandi eru pabbi Óðins og Unnur mín sem vilja auðvitað fá okkur heim sem allra fyrst. Tíminn er nú svo fljótur að líða að við verðum komin heim áður en við vitum af og þá verður eins og að við höfum aldrei farið. Fann það alveg heima hvað það er auðvelt að skipta á milli. En maður á nú kannski aldrei aftur eftir að eiga heima í útlöndum og því eins gott að nýta tímann vel sem eftir er og njóta hans. Og ég geri það ekki ef ég er með eilífar áhyggjur af því hvað aðrir vilja að við gerum.

Ég kynnti mér aðeins atvinnumálin meðan ég var heima og sótti meira að segja um eina vinnu sem ég þótti henta ofboðslega vel í en vandamálið var að þar vantaði manneskju asap og augljóslega þá er ég ekki laus asap. EN gott að vita að CV-ið þykir gott og ég hef verið að gera rétta hluti með náminu mínu. Viðkomandi benti mér á að fyrir það sem ég er að spá í þá væri vor og haust besti tíminn til að fá vinnu svo ég ætla bara að einbeita mér að ljúka mínum verkefnum hér og þegar þeim er lokið þá sný ég mér að því að finna vinnu á Íslandi og flytja heim.

Syndicate content