Edinburgh

Hail Royal Mail!

Minnuga rámar kannski í frásögn mina í maí varðandi skilvirka þjónustu Royal Mail. Nú hafa þeir slegið aldeilis í gegn hjá mér ... ég pantaði bók frá Bóksölunni þann 11. júlí sl. og í dag fékk ég póst frá Bóksölumanni að hún væri aftur komin til þeirra. Ekkert að addressunni nema að það var a á einum stað í staðinn fyrir e í götunafninu. Hef fengið póst hingað með verri utanáskrift, miklu verri. Skil ekki í þessu!!

Komin á kagga....

já dömur og herra, ég hef eftir 414 daga dvöl (rétt um 14 mánuðir sko) keypt mér bíl. Síðustu 414 daga höfum við gengið Edinborg þvera og endilanga og einstaka sinnum tekið strætó eða leigubíl ;) en nú fannst mér tími til komin að sjá meira en það sem er í göngufjarlægð. Nú svo er Linda beib alveg að fara að eiga og maður verður að geta brunað að sjá "prinsinn" (prinsinn kom upp í hugann svo ég læt það með en við höldum nú samt sterklega að þetta sé prinsessa nema það sé bara óskhyggja og Siggu Kling að kenna)þegar okkur hentar og getum farið í stóru búðirnar í úthverfunum án þess að múta vinum með hádegismat og öðru slíku :) En svo var þetta sniðugt líka þar sem ég fékk bílinn á frábærum kjörum (var ekkert að fara að kaupa bíl bara stóðst ekki mátið að kaupa bíl á 500 pund). OG svo er hann merktur Íslandi líka sem er geggjað!!

Hafa feministar ekki kynhvöt?

Ég sá leikrit í uppfærslu Alan Rickman í sumar og las í tengslum við það viðtal við hann í Scotland on Sunday, þar er fjallað um hversu heitt kyntröll Alan Rickman er og um aðdáendabréf til hans frá konum, ein segir "I am a feminist, so I don't understand how you can have this effect on me..." og hann klikkir út með að segja að svona bréf séu algeng.

Ég er feministi svo lengi sem það þýðir að ég trúi á jafnrétti kynjanna, sömu laun fyrir sömu vinnu og allt það en ég trúi líka að ég eigi rétt á minni kynhvöt (sumsé finnast karlmenn sexý og finna eitthvað kvikna við að horfa á þá) og að ég eigi rétt á að vera kona, að klæða mig kvenlega, nota snyrtivörur OG á sama tíma vera tekin alvarlega.

Eða er ég alveg að misskilja þetta má ég ekki lengur taka myndir bara af því að Robert Downey Jr.

Videó

Smellið á linkinn til að sjá okkur Óðinn snillinga með WIndows Movie Maker.

VIDEÓ

opnast með Windows Media Player.

...það leikur allt á reiðiskjálfi

Bank of Scotland styrkir (þetta árið) hina hina árlegu flugeldasýningu sem markar lok Edinborgarfestivalsins. Flugeldunum er skotið upp frá kastalanum sem stendur á bjargi (óvirku eldfjalli) og þar sem við búum ansi nálægt hinum íðifagra kastala þá hristist hér allt við hvert skot.

Óðinn fékk fótboltaskó í dag. Hann er ofboðslega ánægður með þá...en ætlar ekki strax á fótboltaæfingar...hann er svo hræddur um að hann skilji ekki þjálfarann. JoeJoe (heiti í alvöru Joseph) vinur okkar ætlar að taka að sér að kenna Óðni pínu fótbolta ... JoeJoe er svaka klár og er 11 ára.

edinburgh castle

Gubbupest og Sean Connery

Ég skellti mér á fund í gærkvöldi og svo á kaffihús en Katrín barnapía hringdi í mig og bað mig að koma heim því að Óðinn Harri var að kasta upp svo ég dreif mig heim, svaka spennandi kvöld, gat því ekki sagt við neinn í morgun "gettu hvern ég sá í gærkvöldi" og svarað því með "Sean Connery" eins og Siggi sem hitti Sir Sean á karlaklósettinu á fína franska veitingahúsinu sem þau borðuðu á í gærkvöldi, Rúna sá vangasvip og hnakkannn á honum :)

Rúna og Siggi eru að flytja heim á þriðjudaginn verð nú að segja að ég á eftir að sakna þeirra ansi mikið...

...xxx...xxx...xxx...xxx...xxx...xxx...xxx...xxx...xxx...xxx...

...Edinburgh is lovely

...at this time of year.

Borgin er svo yndisleg, og nýlega hef ég haft þó nokkra heimþrá svona afþví að elsku dúllan mín var hérna hjá mér og er farin aftur heim en svo labba ég hérna út og anda að mér skoska loftinu og langar bara ekkert heim ... svo fæ ég aftur heimþrárkast hehe

- . - . - . -

en verð hér bókað í 4-5 mánuði til viðbótar svo gagnlaust að pæla of mikið í þessu --- kíki kannski á einhverjar íbúðír í október :)

það haustar...

...greinilega haust í loftinu þó enn sé ágústmánuður aðeins rétt að verða hálfnaður. Vindurinn blæs kaldari og laufið er farið að láta á sjá. Börnin koma á morgun og Óðinn byrjar í skólanum strax á miðvikudaginn hér úti og Unnur heldur aftur heim mánudaginn 21. ágúst og byrjar daginn eftir í 8. bekk í Hlíðaskóla. Það er ótrúlegt að litla barnið mitt sé að fara að fermast næsta vor. Augljóslega er hún ekki neitt smábarn lengur, ekki einu sinni krakki því þann 11. sept næstkomandi verður hún formlega táningur þar sem hún verður þá þrettán.

Ég fór í gærkvöld út með Erin. Við fórum að sjá Late 'n' live sem hófst klukkan 1am og stóð yfir í fjórar klukkustundir. Fyrstu tvo tímana var stand-up og er óhætt að segja að það hafi reynt á hláturkútinn í minni þar sem lá við gráti nokkrum sinnum en klukkan þrjú tók við frábært band sem samanstóð af 12-14 manns (náði ekki alveg að sjá nákvæma tölu) og spilaði það sambland af salsa, hiphop og þesslags tónlist. Rétt fyrir fjögur gerðist ég samt skynsöm og dró Erin með mér út þar sem ég var með daginn í dag þéttskipaðan í undirbúning fyrir komu barna og eins kom Linda elskan með bumbuna sína í heimsókn (það styttist óðfluga í að sá bumbubúi láti sjá sig). Hinsvegar rákumst við á vini Erinar fyrir utan Teviot Place þar sem við vorum og var ég því ekki komin í ból fyrr en upp úr hálf fimm sem gaf mér fimm tíma svefn því Liz (my landlady) kom um hálfellefu og fór með mig í Sainsburys að versla. Dagurinn fór svo í að ganga frá herbergi prinsins og að þvo og strauja og ryksuga og þið vitið svona skemmtilegustu verk í heimi - húsverkin.

Edinborgarfestivalið hafið

Hið margfræga Edinborgarfestival hófst formlega í dag þó að ýmislegt sé búið að vera að gerast síðustu viku að auki. Enda mörg svona mini festival haldin á þessum tíma líka. Við Erin vinkona skelltum okkur á leiksýningu á föstudaginn, verkið hét "My Name is Rachel Corrie" og var í leikstjórn Alan Rickman leikara (Professor Snape fyrir ykkur sem eruð með lélegt leikaraminni). Verkið byggir á dagbókarfærslum Rachelar og tölvupóstsamskiptum hennar við fjölskyldu sína. Hún lét lífið aðeins 23 ára gömul við friðsamleg mótmæli í Palestínu en jarðýtu var keyrt yfir hana. Þetta var virkilega mögnuð sýning - 90 mínútna frábær einleikur.

Eftir sýninguna fórum við á veitingastaðinn Café Marlayne - það eru reyndar tveir í Edinborg, einn í Thistle Street og annar í Old Fishmarket Close sem liggur niður af Royal Mile sem við fórum á. Við fengum okkur lífrænan kjúkling með "blóðmör", hörpuskel, aspargus og rósmarín dressingu sem var snilldargott.

Top of the Pops

Það eru merk tímamót í sögu British Broadcasting Company um þessar mundir en í gær var sjónvarpað síðasta þætti Top Of The Pops sem hefur gengið látlaust í 42 ár. Bera BBC menn það fyrir sig að svona þáttagerð beri sig ekki í nútímaheimi tónlistarmyndbanda og -stöðva.

Veðurguðir hafa leikið við Bretlandseyjar að auki þetta sumar og heyrði ég einn gamlan í strætó tala um það um daginn að hann myndi ekki annað eins síðan 76 eða 77. Við hér megum vera þakklát fyrir það því Skotland er ekki mjög ólíkt Íslandi og veðurguðirnir oft létt ruglaðir hér fyrir ofan.

ps. "July 'hottest month ever in Scotland'"

Syndicate content