Edinburgh

warning: Invalid argument supplied for foreach() in /home/elfur/sites/drupal6/sites/all/modules/cck/content.module on line 1284.

enn um veðrið...og mýs

algert molluveður úti, held að það sé um 90% raki. Á örugglega eftir að rigna hressilega í kvöld.

Mér var boðið í kaffi með nágrannakonum mínum í morgun, það var mjög gaman. Þær voru mjög skemmtilegar og almennilegar. Allar með börn á aldur við mín. Mér skildist á Catrionu (hún ber það fram eins og Katrina) að ég verði framvegis velkomin í þetta gill hjá þeim. Mjög sátt við það. Verst að ein þeirra sem býr hérna neðar í götunni er að kljást við mýs núna. Ekki mjög spennandi að heyra það. Nú verð ég ennþá meira nojuð. Ég er bara á fullu í forvörnum. Reyna að troða stálull í öll göt, passa að skilja aldrei eftir mat neinsstaðar. Er reyndar með ávaxtaskál á borðinu ennþá og ætla að þrjóskast við með það þar til ég sé í alvörunni mús. Mér finnst þetta svoooo óþægileg tilhugsun. Ekki að ég sé hrædd við mýs en mig langar einhvernvegin ekki að hafa þær skokkandi hér um og yfir okkur á næturna kannski og svona. Jökk :) Æ vonum það besta bara.

Veðrið í dag

Current Nearest Observations:(Fyrir Edinborg)
cloudy 20°C
S (8 mph)
Relative Humidity (%): 49,
Pressure (mB): 1022, Falling,
Visibility: Very good

Thank God It's Friday :)

Jæja, fyrsta heila skólavikan hjá krökkunum bráðum að baki, þau eru alltaf búin klukkan tólf á föstudögum. Það hafa verið blendnar tilfinningar seinni part vikunnar. Unnur er með svolitla heimþrá en vonandi jafnar það sig aftur. Við höfum það náttúrulega alveg ótrúlega gott hérna og hún og Óðinn eru núna komin saman í herbergi og það er ferlega huggulegt hjá þeim. Ég er semsagt komin í "prinsessu"- herbergið og það fer ægilega vel um mig þar. Við erum búin að kynnast íslensku fólki sem býr hérna í næstu götu. Ég var örugglega búin að nefna það að það væri íslensk stelpa í skólanum hans Óðins sem við vorum ekki búin að kynnast og svo fréttum við að það væri íslenskur strákur í skólanum hennar Unnar. Þau eru semsagt systkini. Hann er 14 ára og hún er 6 ára eins og Óðinn. Hún var nefnilega flutt niður í bekkinn hans Óðins í fyrradag. Hún hafði verið sett með jafnöldrum sínum í bekk, eða í Primary 2, en þar sem þau byrja í skóla 5 ára hér þá var hún eftir á. Kann hvorki að lesa né skrifa eins og Óðinn svo þau eru komin saman í bekk. Alveg frábært. Krakkarnir finna svo mikið öryggi í því að hafa Íslendinga nálægt. Mér leiðist nú pínu þessa dagana en aðallega vegna þess að ég er eiginlega búin að vera hundveik og hef ekki haft mikla orku í að gera nokkuð. Það fer nú vonandi að lagast aftur og þá get ég nýtt þessar tvær vikur sem ég á eftir í fríi áður en skólinn byrjar til þess að undirbúa mig betur.

Haust

Það var haustrok í nótt og blómapottar nágrannans fyrir ofan mig félla af gluggasyllum hennar og ofan í garð til mín og brotnuðu auk þess að brjóta einn pott frá mér, allavega því ég er ekki alveg með það á hreinu hvað er í garðinum mínum ennþá. Það eru lauf á gangstéttunum og rusl út um allt eftir rokið en það er samt hlýtt og milt veður. Og þegar ég labba út þá er ferskur andvari í stað mollu. Bara eins og íslenskt sumarveður :)

Ég er núna búin að vera hér í fjórar vikur og krakkarnir í þrjár. Mér varð hugsað til þess áðan hversu fljótt þetta ár verður að líða. Fyrr en varir verðum við komin heim og lítum til baka hissa. Hildur, önnur íslensk stúlka sem verður ein hér í vetur ásamt tveimur sonum sínum kom í fyrradag og við búum mjög nálægt hvor annarri. Við vonumst til þess að geta aðstoðað hvor aðra og veitt stuðning. Hún er fín. Það litla sem ég til hennar þekki.

Helgi

Veðrið er yndislegt, himininn heiðskír og borgin bíður eftir okkur.

Á föstudögum eru krakkarnir bara í skólanum til hádegis svo við röltum okkur um miðjan dag niður á Lothian Road og skelltum okkur í bíó klukkan 15.30. Krökkunum þótti kvikmyndahúsið (Odeon) ótrúlega fínt og við keyptum popp í "baðkari" og horfðum á Charlie and the Chocolate Factory. Þrælfín skemmtun. Ég var búin að gleyma alltof miklu af sögunni. Ég man að Sjónvarpið sýndi teiknimyndaseríu um Kalla og súkkulaðiverksmiðjuna sumarið 1985 og voru Úmpalúmparnir uppáhaldið mitt. Ég fór á Vopnafjörð þetta sumar og það voru strákar þaðan sem tóku þátt í hljómsveitakeppni í Atlavík undir nafninu Grandmaster gámur and the úmpalúmpas :)

Eftir myndina fórum við á Pizza Hut og röltum svo heim aftur og lentum í hellirigningu - svona ekta hitabeltisskúr :)

- ? -

Var að fá þær upplýsingar að Óðinn byrjar ekki í fullu swingi fyrr en 21. september. Veit ekki alveg hvernig konan á skrifstofunni fékk út að það væru bara þrjár vikur í það??!!! Það hlýtur að reddast einhvernveginn.

Krakkarnir eru sæmilega sáttir bara að ég tel.
Mamma fór heim í morgun.

Það hellirignir.

Þakka góðar kveðjur,

Nú styttist í að alvara lífsins taki við.

Krakkarnir byrja í skólanum á miðvikudaginn og mamma fer heim á fimmtudaginn, hennar verður sárt saknað, þó auðvitað sé skrýtið að búa allt í einu með mömmu sinni aftur þá er það búið að vera alveg yndislegt, svo maður tali ekki um léttinn við að deila aftur ábyrgð á heimilishaldi. Ekki að ég sé búin að vera að þræla henni út, sama hverju hún mun halda fram þegar hún kemur heim til Íslands.

Þar sem að Óðinn byrjar í fyrsta bekk hér þá verður skóladagurinn hjá honum ekki komin í eðlilegt horf fyrr en 12. sept. Þessa vikuna mun hann bara mæta milli 11 og 12, þ.e. miðv.dag, fimmtud. og föstudag. Næstu þrjár vikur þar á eftir mætir hann eingöngu frá 9-12 og svo 12. sept byrjar hann að mæta frá 9-3. Svo er spurning hvernig stundataflan mín verður hvort ég þurfi að koma honum í after-school-club eða hvað. Unnur byrjar að okkur skilst alveg á fullu strax á miðvikudaginn því krakkarnir hér fengu víst 3 daga prufukeyrslu í vor. Ætla samt að hringja í skólann hennar á morgun og forvitnast um það. Vera vel undirbúnar.

Yndislegt -

Allt er frábært. Við erum að settla okkur inn í íbúðina og hverfið. Hér er allt svo yndislegt og veðrið er búið að vera dásamlegt. Krakkarnir una sér vel og við Unnur fengum póst í dag "parent/guardian of Unnar Hjaldottir" frá skólanum hennar. Hún er yfir sig ánægð yfir því að þeir breyttu nýverið reglunum um skólabúninga og nú er klæðnaður frjáls - með ákveðnum reglum samt. Semsagt bert hold á ekki að sjást, ekki vera í fötum með dónalegum orðum á og þess háttar. Þetta er til þess að ýta undir "their individuality". Hún er þokkalega sátt við það. Óðinn þarf samt að vera í skólabúning sem ég er ekki alveg með á hreinu ennþá hvernig er. Fæ vonandi upplýsingar um það fyrir helgi. Óðinn talar reglulega um það "þegar við áttum heima á Íslandi" eins og við séum búin að vera hér í mörg ár :) en hann er ánægður sem betur fer. Mamma er að upplifa borgina á sama hátt og ég, held hún sé bara ástfangin.

Syndicate content