Edinburgh
wetrarljóð
Submitted by khh on 28 November, 2005 - 10:30Winter
Winter crept
through the wisperingwood
hushing fir and oak
crushed each leaf and froze each web
but never a word he spoke.
Winter prowled
by the shivering sea
lifting sand and stone;
nipped each limpet silently -
and then moved on.
Winter raced
down the frozen stream,
catching at his breath;
on his lips were icicles
at his back was death.
eftir Judith Nicholls
Unnur var að vinna með þetta ljóð í skólanum.
óskast...
Submitted by khh on 22 November, 2005 - 20:46er einhver sem vill passa hann Bósa okkar í nokkra mánuði. Núverandi pössupía getur ekki haft hann lengur.
ps.Bósi er sumsé rúmlega 2 ára fressköttur sem búið er að gelda
Veturinn er kominn - winter wonderland
Submitted by khh on 18 November, 2005 - 23:40Jebb og með kulda í farteskinu... Ég er mjög ánægð með kuldann, þannig, íbúðin helst hlý ennþá en við röltum okkur samt í bæinn í dag og keyptum náttföt handa öllum í fjölskyldunni. En fyndna er að allir eru alltaf að segja við mig að ég hljóti nú að vera vön svona kulda fyrst ég er frá Íslandi. Og annað fyndið er að ég hélt að Íslendingar einir væru færir um að gera grín að því að ég hafi verið eða sé kölluð Kollý. Ég var semsagt spurð í skólanum í gær hvort ég væri aldrei kölluð annað en Kolbrún og ég sagði frá Kollýjar nafninu, og það var ein sem snéri sér strax við og sagði: "oh, heh,heh, like the dog!!." Kræst og ég hélt ég myndi losna við þetta hér.
Java prófið gekk ágætlega, svona miðað við allt, ég gerði mitt besta - verður spennandi að sjá hver útkoman verður, annars gekk fólki almennt ekkert rosalega vel.
Blúsaður dagur
Submitted by khh on 10 November, 2005 - 00:08Ferlega "blue" dagur, ég var að fara yfir um af streitu útaf Java prófi sem var svo frestað um viku (vona að það komi mér að góðu) og svo fékk Unnur ofboðslega mikla heimþrá í kvöld og það var rosa drama í gangi og einhvernveginn bara erfitt. Ég hef alltaf verið svo jákvæð hérna og ég er það auðvitað enn en bara tekur á að eiga við sum mál og sér í lagi þegar mömmuhjartað er lítið og viðkvæmt. Hefði getað notað knús í kvöld en það bíður bara betri tíma. Komum heim eftir 42 daga og þá verður rosa knús útrás örugglega. Æ best að húrra sér í háttinn. Það verður köld nótt og kalt framundan, spáir jafnvel snjókomu.
Guy Fawkes and Bonfire Night
Submitted by khh on 5 November, 2005 - 22:19Guy Fawkes and bonfire night. Það var svona "bonfire" hér út í garði í kvöld og nágrannarnir söfnuðust þar saman og skutu upp flugeldum. Einhverjir voru ekki jafn hrifnir og hringdu á lögregluna sem kom og sagði að það væri greinilega vel að þessu staðið og fór aftur. Ég setti nú alveg upp spurningarmerki við að að kveikja risabál í miðjum húsahring :) en þetta var skemmtilegt.
Turn back time :)
Submitted by khh on 30 October, 2005 - 12:59Jebb, það kom að því að ég færði mig aftur í tíma.
Frá með deginum í dag þar til síðasta sunnudag i mars erum við komin á sama tíma og allir á Íslandi.
Soldið skrýtið að vakna og klukkan er níu en nei hei í raun og vera er hún bara átta og rosa bjart úti en á móti kemur að það byrjar að dimma upp úr fimm í dag - en maður er svo sem vanur því að það sé dimmt seinnipartinn :)
Heh.
Submitted by khh on 27 October, 2005 - 16:56Hitinn fór í 20 gráður í dag . . . þvílík dýrð og dásemd ;)
Börnin komin heim (út) (löng færsla ýta á read more til að sjá allt)
Submitted by khh on 26 October, 2005 - 09:59Börnin komu heim í gær og auðvitað voru þau ánægð að hitta mömmu sína en Unnur var sérstaklega lítið spennt fyrir því að þurfa að mæta í skólann, reyndar var Óðinn sem hefur alltaf verið kátur og ánægður með allt líka fúll yfir að þurfa að mæta í skólann en held að það hafi mikið með það að gera að hann var mjöööög þreyttur í morgun. Svo er hann orðinn á móti því að fara í after-school-club líka en gæti líka verið vegna þess að hann er mjög þreyttur. En ég fresta því um tíma að setja hann oftar en 2x í viku þá meðan hann jafnar sig. Best að sjá hvað verður.
Skólalífið er að verða meira og meira krefjandi. Ég er í mjög praktísku námi sem þýðir að ég er ekki bara liggjandi yfir bókum (en samt mjög mikið)heldur þarf ég að sitja og hanna ýmiskonar efni í allskonar forritum. Ég er búin að setja upp skipulag og forgangsraða verkefnum til þess að auðvelda mér að koma mér að verki. Það er oft flókið þegar margt kallar að átta sig á því hvað maður á að vera að gera hverju sinni.
komin og farin
Submitted by khh on 16 October, 2005 - 13:18Jæja, þá er Edda Lára komin og farin. Við tættum og trylltum í búðunum og fórum út að borða í hádeginu og kvöldin - þvílík dýrð og dásemd. Á fimmtudeginum borðuðum við á Bar Roma sem er við endann á Princes Street vestan meginn. Það var mjög fínn matur. Í hádeginu á föstudaginn fórum við á Valvona og Crolla sem er ítalskt deli og var búið að mæla með við mig - það var æðislegt og við E.L. sammála um að þetta var besta Capochino sem við höfum fengið á ævinni held ég bara. Um kvöldið borðuðum við á The Bombay Bicycle Club sem var soldið fyndin upplifun. Maturinn var góður en þjónarnir skrýtnir. Þeir voru eitthvað að rífast um það hvað við fengum að borða og það var svolitið fyndið. Við fórum svo í hádeginu í gær á stað hérna rétt hjá mér líka sem heitir Thaisanuk og maturinn var yndislega góður. Fer pottþétt þangað aftur. Svo enduðum við á stað í gærkvöldi sem heitir Metro eða eitthvað slíkt á Grassmarket. Fórum þangað því við ætluðum að skoða Real Mary King's Close sem er upp á Royal Mile - mæli ekki með þeim stað. Maturinn var allt í lagi en ekki mikið meira. Ég náði að versla talsvert af fötum í gær (voða gaman) hef ekkert keypt mér síðan við komum hingað út, bara keypt á krakkana. Þetta var yndislegt. Náttúrulega alltof stuttur tími en ég hlakka bara til að fá fleiri gesti. Held að E.L. geti alveg mælt með herberginu hennar Unnar og rúminu (sem er 1.40) allavega virtist hún ná að hvíla sig voða vel.
Óskast:
Submitted by khh on 11 October, 2005 - 18:16Óska eftir hlýrri manneskju í vetur til að deila rúmi með mér. Æskilegt er að hún sé af kyni karlmanna :)

