Edinburgh

Vá...

Ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn fara krakkarnir heim til Íslands og Edda Lára kemur í heimsókn. Jei. Mikið gaman. Rosalega er tíminn fljótur að líða.

Bureaucracy

Byrjum á þessu jákvæða :) það er sól og 16 stiga hiti úti og það er molla og það er 30. september.
Vá ég er búin að vera hérna í rúmlega 2 mánuði.

Nú ætla ég að kvarta...
1. Bankinn. Djísus, það var búið að vara mig við en ómg. Sko þetta byrjað náttúrulega allt með því að ég var send fram og aftur til þess að redda allskonar gögnum sem svo voru ekki nógu góð og þurfti að laga og eitthvað svona kjaftæði en á endanum gat ég loks skilað inn umsókn og hún týndist. Fannst svo síðan á mánudaginn og mér var sagt að reikningur yrði stofnaður þann dag og ég fengi bara sendar upplýsingar um reikninginn því ég var eitthvað upptekin í skólanum og gat ekki tekið símann. Mér svo sem lá ekki á því ég fékk ekki peninganan mína fyrr en á miðv.dag og hugsaði að þá yrði pósturinn kominn í síðasta lagi. Ég fékk ekkert bréf frá bankanum fyrr en í gær og þá bara Cashline kort en engar upplýsingar um reikninginn og ég þarf að fylla út eitthvað sérstakt form og skila inn í bankann til þess að ég geti svo notað kortið. Ég þarf semsagt að labba mér í útibúið á eftir og brosa breitt og ganga endanlega frá þessu.

Dellan í WeatherPixie.com

í fyrsta skipti sem veðurfregnirnar eru ekki alveg réttar... jú það er ansi hlýtt úti en það er rok og rigning!

Yummy Mummy Week

Sniðugt concept - undirlínan er "because every mum needs some fun". Þetta er í góðgerðarskyni. Mömmur hittast í morgunkaffi, spjalla og skilja eftir aur sem fer til barna með krabbamein. Mér var boðíð í svona kaffiboð í morgun. Mjög notalegt.

Annað er það helst að frétta að ég hætti mér á hárgreiðslustofu í gær, J2, og fékk rótarlitun og klippingu. Er bara ágætlega ánægð. Mér fannst hárið á mér vera orðið einum of dökkt svo við hárgreiðslustúlkan ákváðum að setja aðeins ljósari lit í rótina og lítið út í hárið. Klippa það vel stutt og reyna að lýsa mig smám saman. Hárið er doldið stutt en hinsvegar vex hárið á mér svo hratt að það verður orðið fínt eftir tvær vikur án þess að þurfa aðra klippingu fyrr en um jólin. Nema ég haldi áfram að klippa úr litinn.

Bráðum koma blessuð jólin...

Við skelltum okkur í Sainsbury's á föstudaginn var að versla og viti menn það eru komnar jólavörur í búðina. Meðal annars súkkulaðidagatöl :) Svo vorum við Unnur að rölta niður á Princes Street áðan og sáum að það var komin jólavarningur í sumar búðir :) Ótrúlegt hreint út sagt.

Blair Drummond

Krakkarnir eru í fjögurra daga fríi núna og til að brjóta upp fríið þá skelltum við okkur í Blair Drummond Safari-Park í gær. Við röltum ásamt Guðrúnu, Kára og Þórhöllu niður á Haymarket lestarstöðina eldsnemma og tókum lestina til Stirling klukkan 9.30. Klukkutíma seinna vorum við komin til Stirling og fundum rútu/strætóstöðina þar og tókum strætó í Blair Drummond. Þar hittum við einnig aðra íslenska fjölskyldu sem býr í Edinborg en þau eiga bíl. Það var margt skemmtilegt að sjá. Allskonar dýr auðvitað, bæði villt og líka húsdýr og við sáum sæljóna-show, svín sem hraut, lamadýr og margt margt fleira. (ég á að segja hér frá Óðni að strætóskýlið sem við fórum í var út í sveit) Það voru líka allskonar leiktæki og hægt var að fara í hjólabáta og svo fórum við líka í bátsferð að skoða "chimp island" en þar búa fjórir simpansar yfir sumartímann. Það var ferlega skemmtilegt að sjá þá. Við höfðum ætlað okkur að skoða Stirling eitthvað en þegar við komum til baka þangað um klukkan 18.00 þá vorum við svo búin á því og lestin til Edinborgar var akkúrat að koma svo við drifum okkur bara og fórum svo út að borða á Bar Italia á Lothian Road sem er hérna rétt hjá okkur. Við verðum bara að fara seinna að skoða Stirling :)

Skólastúlkan Kolbrún

Mætti í skólann í dag á sérstakar kynningar sem School of Computing bauð International Students uppá. Þær verða áframhaldandi á morgun og hinn. Ég er búin að skrá mig í skólann og komin með Matriculation card.
Það er greinilegt að enn vantar marga til landsins auk þess sem okkur var sagt af því að fleiri ættu eftir að koma. Af þeim sem mættir voru í dag vorum við aðeins fimm sem vorum ekki frá Kína :) Einn var frá Brasilíu, annar frá Morokkó (talaði mest við þá) og svo voru tveir frá Indlandi. Enginn af þessum verða með mér í prógrammi. Það er nýtt í Napier að tala um Programmes í staðinn fyrir Degrees. Það er líka nýtt fyrir mig að vera í námi þar sem karlmenn eru í meirihluta :)
En í næstu viku verða vonandi

Fullorðin eða barn?

Þá er dóttirin orðin 12 ára sem þýðir að skyndilega er hún farin að þurfa að greiða fullorðinsfargjöld - allavega á Íslandi hjá Icelandair og Austurleiðum (Iceland Express er með 14 ára). Hér í Skotlandi hafa menn manndóm í sér og líta svo á að börn séu börn meðan að þau eru skólaskyld eða til 15 ára aldurs! Þá er sama hvort um ræðir strætó, lest, eða flugvél.

afmæli framundan..

Unnur Helga á afmæli næstkomandi sunnudag og langar mig að benda áhugasömum á að sniðug leið til að koma afmælisgjöf til hennar er að panta hana á www.amazon.co.uk og láta senda gjöfina á heimilisfangið hér. Þeir bjóða upp á gjafapakkningar og allt!! Hún á Ipod Mini svo að fylgihlutir með honum gætu gengið, hún hefur gaman af þáttunum Charmed meðal annars og svo bara eitthvað skemmtilegt.

Unnur kom með þennan miða heim úr skólanum í vikunni...

S1 Parents' Social Evening

Tues. 6th Sept. 7pm in the Library.

Come along, have a glass of wine.
Meet your child's teachers and
hear about the PTA and future
events. (í hægra horni er mynd af vínglasi).

Er nokkuð viss um að mæting á foreldrafundi heima myndi stórbatna ef þetta væri tekið upp þar!!

Syndicate content