Personal
Vei gaman gaman
Submitted by khh on 30 January, 2006 - 22:32Fyrstu önn lokið. Jibbí jei. Skilaði þessu inn í dag.
Líður rosa vel og nú er bara að taka til og tjilla soldið.
Hér er það sem kallast frozen rain í augnablikinu... það er -4 og 93% raki. Sneddí en svo á að fara að hlýna og Dagga og strákarnir koma eftir 10 daga.
Minning um leikara
Submitted by khh on 26 January, 2006 - 13:07Jæja þá er enn einn ungur farinn... Chris Penn látinn 40 ára eða 43 ára. Ekki allir sammála um aldur hans.

Ó og ég var í prófi í morgun... þetta er alveg að hafast bara eitt verkefni eftir... skil á morgun og þá er komið vikufrí!!! JEI
Home Sweet Home
Submitted by khh on 9 January, 2006 - 00:33Það er gott að koma heim.
Þó það sé í leiðinni skrýtið.
Ég missti fríið mitt eiginlega í heilsuleysi
en það var kannski bara það sem ég þurfti.
Hefði viljað hitta allt fólkið sem ég ætlaði að hitta
náði ekki að hitta alla því miður.
En nú er bara að horfa fram á við og ekki syrgja það sem er liðið og ekki verður breytt.
Jeihei 2006
Update
Submitted by khh on 18 December, 2005 - 23:52Jæja.
Eftir þrjá sólarhringa verð ég komin Íslands. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er svona lengi fjarverandi frá hinu ástkæra heimalandi mínu síðan árið 1991 er ég dvaldi í Regina, Saskathewan, Canada. Ég var þar í fimm og hálfan mánuð og er núna búin að vera hér í rétt tæplega fimm mánuði. Það gengur yfirleitt vel. Ég átti erfiðar tvær vikur sem ég virðist vera búin að ná mér af. Það byrjaði á að ég fékk vefjargigtarkast (það versta í 2 ár) og missti svefn. Þegar ég verð þreytt (eins og allir) þá missi ég alla einbeitingu svo ég átti erfitt með að læra. Þá varð ég stressuð og kvíðin og gat ekki sofið og varð þá meira stressuð. Festist í "loop" eða svona Catch 22. Ahh við köllum þetta vítahring á íslensku :) Ég held að það sé gott að fólk (þið sem lesið þetta) viti að þetta er ekki bara dans á rósum, það er bara alveg skrambi erfitt á stundum en sem betur fer er ég umkringd dásamlegu fólki hérna bæði í skólanum og hverfinu.
MALT OG APPELSÍN
Submitted by khh on 10 December, 2005 - 16:43var að skoða DV á netinu, bara afþví að ég gat það og sá allar bókaauglýsingarnar og allt í einu langaði mig svo í malt og appelsín... eða allavega appelsín.. en nú eru tvær vikur til jóla og 11 dagar í heimkomu.. ég hlakka svo til.
wetrarljóð
Submitted by khh on 28 November, 2005 - 10:30Winter
Winter crept
through the wisperingwood
hushing fir and oak
crushed each leaf and froze each web
but never a word he spoke.
Winter prowled
by the shivering sea
lifting sand and stone;
nipped each limpet silently -
and then moved on.
Winter raced
down the frozen stream,
catching at his breath;
on his lips were icicles
at his back was death.
eftir Judith Nicholls
Unnur var að vinna með þetta ljóð í skólanum.
Sveitasæla
Submitted by khh on 25 November, 2005 - 08:12Svo virðist sem Bósi fái að fara í sveitina hennar Unnar. Vonandi mun það ganga vel.
Pabbi er kominn í heimsókn sem er alveg yndislegt, það verður eitthvað svo heimilislegt þegar við bætist fullorðin manneskja á heimilið.
Að auki fæst nú á heimilinu harðfiskur, íslenskur lambahryggur, lakkrís, suðusúkkulaði og nóakropp (sem reyndar kom í pósti frá Kristínu vinkonu - takk fyrir það). Það mætti bara halda að maður væri kominn heim :)
Og það er kominn mánudagur...
Submitted by khh on 14 November, 2005 - 19:40Tíminn er svo fáránlega fljótur að líða að ég hef bara ekki vitað annað eins. Sem er auðvitað bæði kostur og löstur, kostur því það þýðir að það er styttra í að ég komi í heimsókn til Íslands og löstur því ég þarf að gera ótrúlega mikið á stuttum tíma sem flýgur áfram :)
Back to normal
Submitted by khh on 10 November, 2005 - 23:29Og okkur líður öllum mikið betur. Held að það sé bara fullkomlega eðlilegt að eitthvað gefi sig inn á milli þegar álagið er jafn mikið og það hefur verið á okkur síðasliðna mánuði. EN eins og ég sagði við erum bara mjög sátt og Unnur og ég áttum gott spjall (það er ég röflaði eitthvað viskulegt og mömmulegt sem svæfði hana og hún brosti og var greinilega búin að jafna sig) áðan. Við ætlum að gera þessa dvöl okkar hér eins ánægjulega og reynsluríka og við mögulega getum. Við erum sammála um það. Og við megum fá heimþrá og skæla stundum líka :-) það er fullkomlega eðlilegt. Takk fyrir knúsin.
Ó og mér hlotnuðust tvær ljósmyndir í dag, kennarinn minn í Digital media (afskaplega viðkunnalegur gaur og skilningsríkur en bara kann ekki að klæða sig) gaf okkur fullt af ljósmyndum eftir sig. Ég fékk eina af Jesú "I need Jesus in my life", sagði ég við hann alveg að niðurlotum komin í dag. Og aðra af plastboxum röðuðum eins og kross með skordýradóti í og tarantúlu á. Mjög spes. Er að tala um A3 stærð af myndum set þær hérna inn.

