Personal

My own personal opinions on things that don't really matter

Blúsaður dagur

Ferlega "blue" dagur, ég var að fara yfir um af streitu útaf Java prófi sem var svo frestað um viku (vona að það komi mér að góðu) og svo fékk Unnur ofboðslega mikla heimþrá í kvöld og það var rosa drama í gangi og einhvernveginn bara erfitt. Ég hef alltaf verið svo jákvæð hérna og ég er það auðvitað enn en bara tekur á að eiga við sum mál og sér í lagi þegar mömmuhjartað er lítið og viðkvæmt. Hefði getað notað knús í kvöld en það bíður bara betri tíma. Komum heim eftir 42 daga og þá verður rosa knús útrás örugglega. Æ best að húrra sér í háttinn. Það verður köld nótt og kalt framundan, spáir jafnvel snjókomu.

Sting

Ég þekkti einu sinni mann, sem þoldi ekki söngvarann Sting. Mér þótti mjög vænt um þennan mann og þykir enn og alltaf þegar ég heyri einhver lög með Sting (sem mér finnast mörg hver góð) þá hugsa ég alltaf til hans. Las blogg í gær hjá Ásgeiri þar sem hann átti að skrifa texta undir áhrifum tónlistar. Skrýtið hvað tónlist hefur sterk minningaráhrif - líkt og lykt. Mætti halda að ég væri í einhverjum blús hérna... en mér líður vel, hef það gott.

Börnin komin heim (út) (löng færsla ýta á read more til að sjá allt)

Börnin komu heim í gær og auðvitað voru þau ánægð að hitta mömmu sína en Unnur var sérstaklega lítið spennt fyrir því að þurfa að mæta í skólann, reyndar var Óðinn sem hefur alltaf verið kátur og ánægður með allt líka fúll yfir að þurfa að mæta í skólann en held að það hafi mikið með það að gera að hann var mjöööög þreyttur í morgun. Svo er hann orðinn á móti því að fara í after-school-club líka en gæti líka verið vegna þess að hann er mjög þreyttur. En ég fresta því um tíma að setja hann oftar en 2x í viku þá meðan hann jafnar sig. Best að sjá hvað verður.

Skólalífið er að verða meira og meira krefjandi. Ég er í mjög praktísku námi sem þýðir að ég er ekki bara liggjandi yfir bókum (en samt mjög mikið)heldur þarf ég að sitja og hanna ýmiskonar efni í allskonar forritum. Ég er búin að setja upp skipulag og forgangsraða verkefnum til þess að auðvelda mér að koma mér að verki. Það er oft flókið þegar margt kallar að átta sig á því hvað maður á að vera að gera hverju sinni.

Áfram stelpur...

Ég verð með ykkur í anda ...

Óskast:

Óska eftir hlýrri manneskju í vetur til að deila rúmi með mér. Æskilegt er að hún sé af kyni karlmanna :)

BRRRRRRRRR

Ég skrýtin? nei never!


You Are 60% Weird


You're so weird, you think you're *totally* normal. Right?
But you wig out even the biggest of circus freaks!

JIbbí.

Þá er ég búin að fá lokagreiðsluna og Dagga skrifaði undir afsalið fyrir mig í dag. Þvílíkur léttir að vera loksins laus :)

JIBBÍ

Ég mætti í fyrsta tíma í Java Programming í dag (formlegur titill er Software Development I) og sem betur fer er kennarinn skemmtilegur :) Nei nei, ég er ekkert hrædd. Ég ætla að tækla þetta eins og algebruna hér forðum. Í upphafi var ég hrædd og þá gekk illa en þegar ég losaði mig við óttann þá fékk ég 9. Semsagt ÉG ELSKA JAVA!
Mætti líka í Interactive Systems Design í morgun og því miður er kennarinn ekki alveg með kennslufræðina á hreinu, wink wink, hún stóð við hornið á töflunni allan tíma og horfði á PP-showið meðan hún talaði. Það er snéri ekki að nemendum og þar af leiðandi var oft erfitt að heyra í henni. En efnið er áhugavert. Ég er búin að mæta í Web Page Development og þar kannaðist ég við mig að einhverju leyti var bara basic xhtml og ég er aðeins inn í því. En á morgun er svo Digital media og maður má víst byrja að leggja sig allan fram alveg um leið. Við þurfum að ná góðum tökum á allavega sex forritum ef ekki fleirum sem hafa með hljóð, myndvinnslu og teikningu að gera. En þetta er bara spennandi.

Misskilin :(

Ég hef fengið tvö komment á bloggið hér að neðan um veðrið. Fyrst vil ég taka það fram að ég var ekki að kvarta undan veðrinu hér. Málið var að þetta fína veðurforrit hér til hliðar sýnir yfirleitt alveg rétt veður en þegar ég skrifaði bloggið lét það líta út fyrir að það væri 19 stiga hiti og sól þegar það var í raun rok og rigning!! Ég skal segja ykkur það að ég er MJÖG ánægð að vera hér í góða veðrinu og þakklát að vera ekki í kuldanum heima. En að sjálfsögðu sakna ég samt allra heima mjög mikið.

Og þið eigið alla mína samúð - þið ykkar sem eruð heima á Íslandi.

Bráðum koma blessuð jólin...

Við skelltum okkur í Sainsbury's á föstudaginn var að versla og viti menn það eru komnar jólavörur í búðina. Meðal annars súkkulaðidagatöl :) Svo vorum við Unnur að rölta niður á Princes Street áðan og sáum að það var komin jólavarningur í sumar búðir :) Ótrúlegt hreint út sagt.

klukk

Ég var klukkuð af Evu og á að segja einhverjar 5 staðreyndir um sjálfa mig.

1. Mér finnst mjög leiðinlegt að versla föt og skó en elska að versla fyrir heimilið. Sem þýðir líka að mér finnst gaman að skoða bæklinga frá IKEA, Húsgagnahöllinni, Lakeland og allskonar svona byggt og búið búðum.

2. Ég bjó í Kanada (Saskatchewan) þegar ég var 17-18 ára. Ég flutti út í janúar og þá var 35°C frost og ég flutti heim í lok júní og þá var 35°C hiti.

3. Ég er alltof tilfinningasöm. En á það til að halda mér góðri en fara svo að skæla yfir einhverjum stórfurðulegum hlutum sem hafa í raun og veru ekkert með það að gera afhverju ég er að skæla.

4. Ég er búin að blogga síðan í júlí 2002 og hef átt þrjár bloggsíður. Mér finnst ég samt ekki hafa neitt sérstakt að segja :)

5. Ég hef komið til Færeyja (1985), Noregs ('83, '85, '97), Svíþjóðar ('85, '01 '04), Bandaríkjanna ('91, '98), Kanada ('91, '94, '03), Danmerkur ('01, '04), Frakklands ('95), Spánar ('96, '00), Skotlands ('02, '03, '04, '05) og Englands ('05).

Best að klukka Helgu Rós, Dísu, Öllu, Lindu og Elfi en aðrir mega að sjálfsögðu taka þátt líka. Þetta eru bara þær sem blogga svo lítið að þær þurfa á sparki í rassinn að halda :)

Syndicate content