Personal

warning: Invalid argument supplied for foreach() in /home/elfur/sites/drupal6/sites/all/modules/cck/content.module on line 1284.
My own personal opinions on things that don't really matter

All quiet

... ekkert að frétta bara nóg að gera!

Singing in the Rain, Raindrops keep falling on my head, It's a rainy night in Georgia...

og fleiri lög koma upp í hugann þegar að rignir úti... það kemur líka upp í hugann It's raining men en það er bara óskhyggja :) heh.

Það er í nógu að snúast þegar líður að lokum vorannar. Innan við tvær vikur eftir í kennslu í framhaldskólanum og yfirferð verkefna í háskólanum er á fullu. Veit ekki hvenær sér fyrir endann á því en geri ráð fyrir því að hafa lokið við að skila af mér öllu í kringum 20. maí. Mér finnst skrýtin tilhugsun að hætta að vinna því þetta eru vinnustaðir sem ég er ekki að snúa aftur til, allavega ekki í bráð. Ég hef svo sannarlega fundið mig í starfi og hef sett mér það markmið að dýpka þekkingu mína enn frekar á sviði kennslufræði og ætla að nýta margmiðlunarnámið úti algjörlega í kennslufræðilegum tilgangi. Það er frábær tilfinning að upplifa það að vera komin á rétta hillu. Ekki það að ekkert af því sem ég hef lagt stund á hingað til hefur verið röng hilla - þetta tengist allt með einum eða öðrum hætti.

SELD

Já íbúðin seldist á rétt tæpri viku. Táknrænt að þegar ég kom heim af fasteignasölunni þá beið mín bréf frá Napier University með staðfestingu á að þeir hefðu móttekið bréfið frá mér þar sem ég staðfesti að ég myndi þiggja plássið sem þeir buðu mér. ÚHHHH mar bara fær sting í magann :)

DURAN DURAN

Ég ætla sko á Duran Duran tónleikana 30. júní - hver vill vera memm!

ps. áhugasömum er á bent á að við lengri færslur þarf að smella á "read more" til þess að fá alla færsluna fram :)

Nýja síðan mín

Gasalega smart. Framvegis verður ekkert bloggað meir á Blogger held ég því hér hef ég athvarf. Á eftir að fikta og læra en lítur spennó út.

Syndicate content