Kaflaskil kennsla og ráðgjöf
  • forsíða
  • vefnaður

My Life in Words

Hér birti ég mínar hugsanir (og stundum annarra) 

Ljósið í myrkrinu

11/12/2016

 
Sú mynd sem hefur verið dregin upp af Efra Breiðholtinu síðustu daga í fjölmiðlum hefur vakið hjá mér sorgartilfinningu. Mig langar að segja ykkur sögu af mér.
Ég ólst upp í Seljahvefi og var í Seljaskóla, það þótti dáldið fínna hverfi en Fellahverfi í þá daga og eflaust eru þar enn í dag efnameira fólk en í Fellahverfinu. Þegar ég var 19 ára eignaðist ég mitt fyrsta barn og ég sótti um hjá verkamannabústöðum um íbúð og þá í Grafarvoginum.

Þegar kom að úthlutun tveimur árum sienna, árið 1994 var sonur minn orðin tveggja ára og mér var úthlutað íbúð í Fellahverfi. Ég fékk smá sjokk því í Fellahverfi hafði ég aldrei geta hugsað mér að búa en gat ekki neitað því heimili sem mér hafði verið gefinn kostur á að fá fyrir mig og barnið mitt. Ég og sonur minn gátum eignast öruggt heimili fyrir okkur og þurftum ekki að búa við þá óvissu að flakka á milli staða eins og er hjá mörgum sem eru á leigumarkaðinum í dag. Á þessum tíma vann ég á Endurhæfingadeild fyrir aldraða, var í láglaunastarfi til margra ára og var mikið ein með drenginn minn. Ég verð ævinlega þakklát „verkó“ fyrir að hafa verið til á þessum tíma og gera þeim kleift sem unnu láglaunastörf að eignast þak yfir höfuðið. 
Möðrufell 9
Í ganginum mínum voru 10 íbúðir, við bjuggum á annari hæð með fallegt útsýni yfir Elliðarárdalinn, hesthúsin í Víðidal, Esjuna, Úlfarsfell, Bláfjöll og lengi mætti telja, nýtt málverk á hverjum degi eftir árstíðum. Við eldhúsgluggann átti ég ófáar stundir þar sem ég naut þess að hafa útsýnið eða hafa einhvern í kaffispjalli við eldhúsgluggann, fylgjast með hver var að koma eða fara. Í byrjun voru allir íbúar í ganginum sem höfðu fengið úthlutað hjá Verkamannabústöðum. Nágrannar mínir voru flestir einstæðar mæður ef mig minnir rétt þá voru einstæðingar í átta íbúðum og pör í tveimur.

Eldra fólk bjó í ganginum sem reyndust okkur vel, voru eins og foreldrar og amma og afi barna okkar, þar var maður alltaf velkomin í heimsókn og kaffispjall, það var notalegt að eiga þau að. Hjá okkur einstæðu mæðrunum myndaðist mikill vinátta sem hefur haldist alla tíð, við studdum hvor aðra og vorum eins og fjölskylda, skiptust á að bjóða hvor annarri í mat og til þeirra gat maður alltaf leitað bæði í gleði og sorg. Ég upplifði mig aldrei eina þegar ég bjó í Möðrufelli 9 þó ég hafi stundum fundið fyrir því að eiga ekki alltaf pening og þurfa að fara vel með hann þegar ég var ein. Ég var lánsöm að geta leyft drengnum mínum að vera í íþróttum hann var meðal annars í Leikni að æfa fótbolta ásamt því að prófa aðrar íþróttagreinar. Þþar hafði hann stuðning beggja foreldra sem er víst ekki alltaf sjálfsagt hjá öllum.

Þegar Verkamannbústaðir hættu var hægt að selja íbúðirnar á frjálsum markaði og höfðu Félagsbústaðir forgangsrétt á að kaupa íbúðirnar og keyptu þeir tvær tveggja herbergja íbúðir í ganginum okkar. Þeim var úthlutað til öryrkja sem létu lítið fyrir sér fara og fundum við ekki fyrir ónæði af þeim, þó vissulega hafi maður heyrt að annarstaðar hafi óregla oft fylgt mörgum félagslegum íbúðum. Í Fellahverfi var mikið af félagslegum íbúðum og oft heilu gangarnir. Það var víst ekki alltaf gott að hópa öllum saman sem þurftu á félagslegri íbúð að halda, því var svo splittað upp og reynt að dreifa fólki í þeirri stöðu víðar og miðað við ekki fleiri en tvær íbúðir í stigagangi. Ég held satt best að segja að komi mikið betur út og þurfi að dreifa því ennþá víðar um hverfin en ekki láta álagið vera sem mest í einu hverfi eins og Fellahverfi. Þetta þarf að laga svo þetta hverfi hafi ekki alltaf þennan ljóta stimpill á sér eins og það hefur haft síðan það byggðist.

Það er svo önnur saga hvort eða hvernig sé hægt að breyta því viðhorfi sem eitt sinn hefur myndast, en ég get sagt að stundum þegar ég var spurð hvar ég byggi þá reyndi ég að koma mér un.dan því að segja í Fellahverfinu heldur sagði í Breiðholtinu, og oftar en ekki þá var ég spurð hvar í Breiðholtinu? Þá neyddist ég til að segja í Fellunum sem ég stundum skammaðist mín fyrir að búa í vegna viðhorfs fólks og oftast vildi fólk fá að vita nánar um hvernig væri að búa þar en ég get sagt það að það var ekkert verra en annarsstaðar. Aðstæður fólks eru mismunandi og fátækt og félagsleg úrræði eru í nánast öllum póstnúmerum á landinu.

Ég átti íbúðina mína í Möðrufellinu í 22 ár og flutti í Hafnafjörð í mars 2016 með manni mínum og tveimur sonum, okkur líkar bara vel hérna og margt gott sem Hafnafjörður hefur uppá að bjóða, þó mun ég alltaf sakna vinkvennanna sem ég hafði í Möðrufellinu. Helstu breytingarnar sem ég varð vör við á þessum árum í Breiðholtinu var innflytjenda straumurinn eins og fram hefur komið í fréttum og það er staðreynd, að það er orðið miklu hærra hlutfall af erlendum börnum þarna bæði í leikskólunum og skólum í 111 RVK en ég veit ekki með neðra Breiðholt og Seljahverfið. Það er mikið horft í hvernig útlendingar eiga að aðlagast okkur en þetta er líka spurning hvernig við eigum að aðlagast þeim, þar sem margt af þessu fólki talaði ekki tungumálið okkar né ensku. þarna er að miklu leiti að myndast nýtt samfélag innflytjenda á mörgum tungumálum og spurning hvernig samfélagið ætlar að taka á því að búa að þessu fólki sem hefur flutt til landsins og okkur Íslendingunum.

Fjölskylduhjálp kom fyrir nokkrum árum uppí Efra Breiðholt og var mér stundum brugðið þegar ég keyrði þar fram hjá að sjá hvað biðröðin þar fyrir utan fór alltaf stækkandi með hverju árinu. Fólk stendur þar í hvaða veðri sem er að sækja um mataraðstoð og oft hefur mér verið hugsað til þess hvað neyðin er mikil hjá mörgum. Að eiga ekki fyrir mat er dapurleg tilhugsun og ekki síður að eiga ekki heimili hvar sem þú ert búsettur og það á ekki bara við Breiðholtið þar býr líka fólk sem er vel stætt.
​
Mig langar að nefna nokkra góða kosti sem 111 Reykjavík hefur uppá að bjóða, í Efra Breiðholti er ein besta sundlaug sem ég veit um og þar var verið að bæta við World Class íþróttamiðstöð, frábært bókasafn er staðsett í Gerðubergi ásamt safni, tónlistarskóli, heilsugæslustöð, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, fótboltafélagið Leiknir og ÍR. Þar var allt gert upp fyrir nokkrum árum þannig að aðstaðan þar er til fyrirmyndar og svo eru frábærar gönguleiðir í fallegri náttúru við bæjardyrnar, Elliðaárdalurinn, og eflaust er hægt að nefna fleiri kosti en þá sem ég hef talið upp.
Lengi lifi Breiðholtið og takk fyrir mig, ég á margar góðar minningar þaðan og ég veit um marga sem hafa alist þar upp sem hafa orðið þjóðþekktir, öðlast góða menntun og komið sér vel áfram í lífinu.
Þessi saga er ekki byggð á neinum heimildum heldur einungis upplifun minni sem íbúa í Fellahverfi. 
Hafdís Ósk Karlsdóttir
 


Comments are closed.

    Höfundur

    kolbrún hlín.

    safn

    May 2020
    June 2017
    November 2016
    January 2015

    flokkar

    All
    Hamingjuráð

    RSS Feed

copyright 2020

  • forsíða
  • vefnaður