Markmið okkar er að koma viðskiptavininum af stað með eigin vefsíðu sem einfalt er að sinna og uppfæra að uppsetningu lokinni.
khh vinnur með vefumsjónarkerfi (CMS) sem eru einföld í notkun og auðvelt að vinna með svo viðskiptavinurinn getur tekið við stjórninni ef hann það kýs eða haldið khh sem vefstjóra.
Unnið er með sniðmát kerfanna en ávallt er hægt að gera einhverjar breytingar á CSS/HTML til að gera síðuna persónulegri ef þess er óskað.